Fara í efni
Fréttir

Fullkomin byrjun á skipstjórnarferlinum

Lýður Valgeir Jóhannesson skipstjóri í brúnni, skömmu fyrir brottför. Mynd: samherji.is.

Það má segja að Lýður Valgeir Jóhannesson hafi fengið ansi góða eldskírn sem skipstjóri. Fyrsta veiðiferðin hans í brúnni á Harðbak EA 3 endaði með fullfermi, um 240 körum eða 75–85 tonnum af blönduðum afla. Og þegar kom að því að landa var stefnan tekin á Grundarfjörð, heimabyggð Lýðs.

Ekki hafði þó gefist mikill tími til að venjast tilhugsuninni um nýja ábyrgð áður en lagt var af stað. Lýður, sem hefur starfað hjá Samherja lengst af frá því hann útskrifaðist frá Stýrimannaskólanum árið 2010, fékk einfaldlega símtal með stuttum fyrirvara.

„Ég fékk hringingu með nokkurra daga fyrirvara og viðurkenni fúslega að eftir símtalið varð ég nokkuð stressaður við tilhugsunina um að bera fulla ábyrgð á áhöfninni og skipinu. Þegar um borð var komið róaðist hugurinn, enda Harðbakur mjög gott skip og áhöfnin frábær og samheldin,“ segir Lýður viðtali í frétt á vefsíðu Samherja.

Hann hafði þó töluverða reynslu í farteskinu. Undanfarin fimm ár hafði hann verið fyrsti stýrimaður á Harðbak og þekkti því bæði skipið og áhöfnina vel.

Veiðin glæddist eftir tregt fiskerí í byrjun

Veiðiferðin byrjaði ekki með látum. Harðbakur hélt fyrst á Halann, þar sem veiðin var þokkaleg fyrsta sólarhringinn en dalaði síðan. Þá var haldið á nýjar slóðir út af Snæfellsnesi og þar tók fiskiríið heldur betur við sér.

„Við byrjuðum á Halanum, norðvestur af Ísafjarðardjúpi og fyrsta sólarhringinn var þokkaleg veiði sem datt svo niður. Þá færðum við okkur á veiðislóð út af Snæfellsnesi, þar sem var fín veiði og við náðum þar að fylla skipið,“ sagði Lýður. Aflinn var blandaður og að sögn Lýðs ágætis hráefni. Um 240 kör voru komin í skipið, alls á bilinu 75 til 85 tonn.

Þar sem Harðbakur var staddur úti fyrir Snæfellsnesi var ekki talið skynsamlegt að sigla með ferskan aflann alla leið norður fyrir land. Því var ákveðið að landa í Grundarfirði.

Og þar beið Lýðs líka ákveðin persónuleg stund.

Landaði í heimabyggð

Lýður er Grundfirðingur og því var auðvitað ákveðin táknræn merking í því að fyrsta veiðiferð hans sem skipstjóra skyldi enda með fullfermi í heimahöfn. „Sjómennska og skipstjórn nær nokkra ættliði aftur í tímann, faðir minn var til dæmis skipstjóri hjá Samherja á sínum tíma. Jú jú, fyrir mig var auðvitað sérstaklega gaman að landa í heimabyggð,“ segir hann.

Hann leggur þó áherslu á að verðmæti túrsins felist fyrst og fremst í gæðum aflans. Hann hafi vissulega verið ánægður með að koma í land með fullfermi, en hráefnið skipti mestu máli. Aflinn verður unninn í landvinnslum Samherja á Akureyri og Dalvík.

Lýður að ganga frá skráningu áhafnar fyrir túrinn. Mynd: samherji.is.

Þakklátur fyrir traustið

Það voru ellefu manns í áhöfn Harðbaks í túrnum og Lýður segir það skipta miklu máli að hafa vana menn með sér þegar mikið liggur við.

„Þessi fyrsti túr minn sem skipstjóri gekk vel, þótt hann hafi að vísu verið í lengri kantinum. Ég er þakklátur útgerðinni fyrir traustið, það er í mínum huga síður en svo sjálfgefið að taka við skipstjórnarstöðu þótt ég hafi verið fyrsti stýrimaður og þess vegna með talsverða reynslu.“

Hann nefnir einnig sérstaklega gott samstarf við Guðmund Ingvar Guðmundsson, sem verið hefur skipstjóri á Harðbak. „Samvinna okkar Guðmundar Ingvars Guðmundssonar skipstjóra hefur verið mjög góð, hann er óþreytandi við að miðla sinni reynslu og fyrir það er ég honum þakklátur,“ segir Lýður.

Strax aftur í brúnni

Lýður þarf ekki að bíða lengi eftir næsta tækifæri til að spreyta sig í skipstjórastólnum. Hann verður skipstjóri í næstu veiðiferð Harðbaks og reiknar með að farið verði á svipaðar slóðir og í fyrsta túrnum.

Eftir fullfermi í fyrsta túrnum er óhætt að segja að byrjunin hafi verið eins góð og hægt var að óska sér. „Ég get ekki annað en verið afskaplega sáttur við byrjunina á skipstjórnarferlinum,“ segir Lýður Valgeir Jóhannesson skipstjóri í fréttinni á vef Samherja.