Fara í efni
Fréttir

Drift og Skógarböðin hefja samstarf

Eva Björk Halldórsdóttir, skrifstofustjóri Skógarbaðanna, og Kolfinna María Níelsdóttir, leiðtogi markaðs- og viðburðamála hjá Drift EA sitja hér fyrir framan þau Sesselju Barðdal, framkvæmdastýru Driftar EA, og Kjartan Sigurðsson, framkvæmdastjóra hjá Skógarböðunum.

Drift EA og Skógarböðin hafa efnt til samstarfs sem miðar að því að efla nýsköpun á Norðurlandi og auka aðdráttarafl svæðisins fyrir fyrirtæki og teymi víðs vegar af landinu.

Fram kemur í fréttatilkynningu að samstarfið sé að nokkru leyti óhefðbundið, þar sem lögð er áhersla á sameiginlega markaðssókn og heildstæða upplifun. Markmiðið er að sameina vinnu, innblástur, tengslamyndun og vellíðan í einni heild þar sem þátttakendur geta bæði starfað og notið þess sem svæðið hefur upp á að bjóða.

Að sögn Sesselju Ingibjargar Barðdal, framkvæmdastýru Driftar EA, snýst verkefnið um að líta á Norðurland sem vettvang fyrir sköpun og þróun, en ekki eingöngu sem ferðamannastað. Með samstarfinu við Skógarböðin sé hægt að bjóða upp á upplifun þar sem nýsköpun og tengsl við náttúru og samfélag fari saman.

Með verkefninu vilja Drift EA og Skógarböðin laða að fyrirtæki, rannsóknar- og þróunarteymi sem og stjórnendahópa sem vilja stíga út úr daglegu umhverfi og finna nýjan innblástur. Áhersla er lögð á að skapa aðstæður þar sem teymi geta unnið í skapandi umhverfi og jafnframt tengst atvinnulífi og nýsköpun á svæðinu.

Kjartan Sigurðsson, framkvæmdastjóri Skógarbaðanna, segir samstarfið falla vel að framtíðarsýn fyrirtækisins um að bjóða upp á upplifanir sem hafi dýpri merkingu og langtímagildi. Hann bendir á að tækifæri felist í því að laða að öflug teymi sem leiti nýrra leiða til að þróa hugmyndir sínar.

Samstarfið er liður í að styrkja Norðurland sem svæði þar sem nýsköpun, atvinnulíf og lífsgæði mynda sterka heild og skapa grundvöll fyrir áframhaldandi vöxt.