Fara í efni
Fréttir

Drift EA: Kolfinna María ráðin markaðsstjóri

Kolfinna María Níelsdóttir fyrir utan gamla Landsbankahúsið við Ráðhústorg þar sem Drift EA er til húsa. Mynd: Sindri Swan

Kolfinna María Níelsdóttir hefur verið ráðin leiðtogi markaðs- og viðburðamála hjá Drift EA, miðstöð frumkvöðla og nýsköpunar. „Hún bætist þar með í kjarnateymi Driftar EA sem hefur það að markmiði að efla frumkvöðla- og nýsköpunarumhverfi á Norðurlandi,“ segir í tilkynningu frá Drift.

Kolfinna er með BA-gráðu í félagsvísindum frá Háskólanum á Akureyri og stundaði meistaranám í ferðamálafræði og samfélagsgreiningum við Álaborgarháskólann í Kaupmannahöfn. „Hún býr yfir víðtækri reynslu af markaðs- og nýsköpunarstarfi, en áður starfaði hún m.a. sem verkefnastjóri kynningarmála hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og hefur síðustu fjögur ár leitt markaðs- og nýsköpunarstarf hjá Eimi, félags um bætta nýtingu auðlinda á Norðurlandi,“ segir í tilkynningunni.

„Það er mikill fengur að fá Kolfinnu til liðs við Drift EA. Hún kemur í teymið með einstaka reynslu og breiða þekkingu sem mun styrkja starfsemi Driftar enn frekar og það markmið að skapa öflugt nýsköpunar- og frumkvöðlaumhverfi á landsbyggðinni“, eftir haft eftir Sesselju Ingibjörgu Barðdal, framkvæmdarstýru Driftar EA. 

„Kolfinna hefur gegnt lykilhlutverki í verkefnum á borð við nýsköpunarverkefnið Norðanátt og hafði m.a. umsjón með skipulagi Fjárfestahátíðar á Siglufirði. Hún hefur víðtæka reynslu af stefnumótun og miðlun, meðal annars á sviði samfélagsmiðla, vefsíðugerðar og markaðsefnis, kynningarstarfi í alþjóðlegum samstarfsverkefnum og skipulagningu viðburða af ýmsum toga,“ segir í tilkynningu Driftar.

Hún segist full tilhlökkunar fyrir nýju stöðunni og þeim verkefnum sem framundan eru.

„Á sínu fyrsta starfsári hefur Drift EA þegar fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir fyrirtæki, frumkvöðla og nýsköpun á Norðurlandi. Það er afar spennandi að fá tækifæri til að vera hluti af þeirri vegferð og taka þátt í uppbyggingu starfsins. Verkefnin framundan eru stór og spennandi og ég hlakka til að vinna markvisst að því að styrkja samfélagið, efla tengingar og auka sýnileika þess starfs sem fram fer á Eyjafjarðarsvæðinu sem hefur svo áhrif langt út fyrir landshlutann,“ segir Kolfinna María.

Drift EA var stofnað í lok 2024 með það að markmiði að styðja við frumkvöðla, nýsköpun og atvinnulífið á Akureyri og í Eyjafirði með aðstöðu, faglegri ráðgjöf, fjármagni, tengslaneti og viðburðum sem efla nýsköpun og verðmætasköpun í heimabyggð.