Fara í efni
Fréttir

Brim fjárfestir í UNO fyrst íslenskra fyrirtækja

Samningurinn handsalaður. Frá vinstri: Ragnar A. Guðmundsson, sölustjóri Vélfags, Bjarmi Sigurgarðarsson, þróunarstjóri og stofnandi Vélfags, Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brim og Hólmar Jóhann Hinriksson, framkvæmdastjóri Fiskvinnslunnar Kambs.

Sjávarútvegsfyrirtækið Brim og Fiskvinnslan Kambur skrifuðu í dag undir samning við Vélfag um kaup á fyrstu UNO vélinni á Íslandi. Vélin verður sett upp í vinnsluhúsnæði Fiskvinnslunnar Kambs í Hafnarfirði. Þetta kemur fram á vef Fiskifrétta.

Skrifað var undir samninginn á Sjávarútvegsráðstefnunni sem stendur yfir í Hörpu í Reykjavík í dag og á morgun.

Auk kaupa á vélinni tryggði Brim sér forkaupsrétt að fimm UNO vélum sem framleiddar verða.

„UNO er byltingarkennd nýjung fyrir fiskvinnslur en Vélfag hefur verið að þróa þessa vél í nokkur ár og kynnti til leiks í fyrra,“ segir í tilkynningu frá Vélfagi. „Virknin í UNO er sú að settur er inn slægður heill fiskur og vélin sér síðan um að flaka, skera út beingarð og roðrífa án utanaðkomandi aðstoðar og skilar frá sér flökum, tilbúin í snyrtingu, ásamt aukaafurðum.“

Gríðarlega ánægð

„Þetta er framtíðin fyrir íslenskan sjávarútveg, sjálfvirkni sem fækkar höndum og eykur gæði, hraða og afköst. Við erum gríðarlega ánægð með þennan samning og að vera fyrsta íslenska fyrirtækið til að innleiða þessa tækni og þar af leiðandi að styðja við tækniframfarir í sjávarútvegi,“ segir Hólmar Jóhann Hinriksson, framkvæmdastjóri Fiskvinnslunnar Kambs, í tilkynningunni.

Bylting í vinnslu hvítfisks

Gert er ráð fyrir að Fiskvinnslan Kambur fái vélina afhenda í fyrri hluta árs 2024.

„Þetta er stór áfangi fyrir Vélfag og mikil viðurkenning að Brim fjárfesti í UNO ásamt forkaupsrétt af fimm UNO vélum til viðbótar. Við finnum við fyrir gríðarlegum áhuga og eftirvæntingu á markaðnum fyrir þessari lausn og kemur vélin til með að gjörbylta hvítfiskvinnslu og er ein mesta framþróun í vinnslutækni síðari ára, algjör leikbreytir,“ segir Ragnar Guðmundsson, sölustjóri Vélfags.