Formaður stjórnar Vélfags handtekinn
Héraðssaksóknari hefur hafið rannsókn á starfsemi tæknifyrirtækisins Vélfags, húsleit var gerð í húsnæði fyrirtækisins á Akureyri í morgun og stjórnarformaðurinn Alfreð Tulinius handtekinn. Hann hefur réttarstöðu sakbornings skv. frétt RÚV sem greindi fyrst frá málinu.
Vélfag er eina íslenska fyrirtækið sem sætt hefur viðskiptaþvingunum vegna meintra tengsla við skuggaflota Rússlands, eins og áður hefur komið fram.
„Við erum að hefja rannsókn á málefnum Vélfags, í tengslum við það eru þessar aðgerðir,” segir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari í samtali við Heimildina. Þar segir: „Embættið sem hann fer fyrir er með rannsókn málsins. Ólafur Þór sagðist ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu þar sem aðgerðirnar væru yfirstandandi.”
Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar er til rannsóknar hvort Vélfag hafi brotið gegn þvingunaraðgerðum sem fyrirtækið sætir.
Meira síðar