Fara í efni
Fréttir

Akureyri verði græn og gróðursæl borg

Kjarnagata í Naustahverfi. Mynd af vef Skógræktarfélagsins.

Akureyri er þekkt fyrir mikinn og fallegan trjágróður en stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga þykir ekki nóg að gert í nýjustu hverfunum. Nútíma skipulag með þéttari íbúðabyggð en áður geri fólki oft erfitt um vik að rækta stór tré í görðum og því skipti miklu máli að planta trjám annars staðar.

Skógræktarfélag Eyfirðinga hefur vegna þessa skorað á bæjaryfirvöld á Akureyri að huga betur að gróðursetningu trjágróðurs í nýjum og nýlegum hverfum, einnig að við endurskipulagningu eldri svæða sé trjágróðri á vegum bæjarins þyrmt eins og kostur er og gert ráð fyrir nýjum þar sem fórna þarf trjám.

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á stjórnarfundi félagsins í gærkvöldi og send á bæjaryfirvöld.

Stjórnarfundur Skógræktarfélags Eyfirðinga haldinn í Kjarnaskógi þann 18. október 2023 beinir þeirri áskorun til bæjaryfirvalda að hugað verði betur að gróðursetningu trjágróðurs í nýjum og nýlegum hverfum bæjarins s.s. samsíða akbrautum eða á grænum svæðum.

Nútímaskipulag með þéttari íbúðabyggð gerir íbúum oft erfitt um vik að rækta stór tré í görðum sínum líkt og finna má í eldri hverfum. Því hefur mikilvægi þess aukist að hugað sé að skipulagningu trjágróðurs utan hefðbundinna lóðarmarka fasteigna.

Félagið beinir einnig þeirri áskorun til bæjaryfirvalda að við endurskipulagningu eldri svæða sé trjágróðri á vegum bæjarins þyrmt eins og kostur er og gert ráð fyrir nýjum þar sem fórna þarf trjám.

Tré, einkum stór tré, bæta lífsgæði íbúa í bænum. Þau binda mikið magn kolefnis sem skiptir miklu máli í baráttunni við hamfarahlýnun af mannavöldum. Að auki mynda þau skjól fyrir vindum og draga úr svifryks- og hljóðmengun. Jafnframt er búið að sýna fram á að gróður hefur jákvæð áhrif á sálarlíf manna af öllum kynjum, enda leitar fólk í skóga. Því er mikilvægt, fyrir lýðheilsu og fegurð bæjarins, að bæjaryfirvöld geri trjágróðri hátt undir höfði.

Skógræktarfélag Eyfirðinga er boðið og búið í samvinnu við bæjarfélagið að hlúa að því gróðursæla og hlýlega yfirbragði sem einkennir Akureyri. Stefnum saman að grænni og gróðursælli borg í norðri.