Fara í efni
Gervigreind - pistlar

Hlíðarvallamálinu frestað í bæjarstjórn

Mynd af Facebook-síðu Bílaklúbbs Akureyrar.

Bæjarstjórn samþykkti í gær samhljóða að fresta afgreiðslu deiliskipulagsbreytingar fyrir athafnasvæði við Hlíðarvelli sem skipulagsráð hafði vísað til bæjarstjórnar og lagt til að bæjarstjórn samþykkti með minniháttar breytingum sem ráðið gerði til að koma til móts við efni innkominna athugasemda eftir auglýsingu tillögunnar. 

Sunna Hlín Jóhannesdóttir, bæjarfulltrúi B-lista og formaður skipulagsráðs, mælti fyrir málinu í bæjarstjórn og lagði sjálf til að afgreiðslu málsins yrði frestað. Sunna kvaðst líta á málið þannig að skipulagsvinnunni væri í raun lokið. Eftir hafi verið að ganga til samninga við aðila sem eiga hlut að máli vegna breytinganna og vísaði þar til tilfærslu á reiðstíg og minnkun á athafnasvæði Bílaklúbbs Akureyrar. Áður en hægt væri að úthluta lóðinni þyrfti að klára samninga við þessi félög. Í frétt akureyri.net í gær kom fram í samtali við Einar Gunnlaugsson, formann Bílaklúbbs Akureyrar, að hann óttist að hagsmunir klúbbsins víki vegna stækkunar gagnavers atNorth. 

„Það verður að segjast hreinskilnislega að það var mín von að við værum komin lengra frá miðvikudegi til þriðjudags í þessum málum og við værum búin að ganga frá fleiri lausum endum. En þessum samtölum er hins vegar ekki að fullu lokið þó margt sé orðið skýrt og við viljum því gefa okkur og þessum hlutaðeigandi aðilum viðbótarfrest til þess að ganga frá öllum lausum endum,“ sagði Sunna Hlín meðal annars á bæjarstjórnarfundinum í gær. Hún benti jafnframt á að lóðin væri mjög flókin í úthlutun vegna innviða sem væru á svæðinu sem þyrfti að passa upp á. 

Þórhallur Jónsson A-lista og Sindri S. Kristjánsson S-lista, sem báðir eiga sæti í skipulagsráði, tóku til máls um þetta mál á fundinum í gær og fögnuðu því að málinu yrði frestað þar til gengið hefði verið frá lausum endum. 

Um menntakerfið á tímum gervigreindar

Magnús Smári Smárason skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Magnús Smári fjallar um gervigreind á mannamáli

Valur Sæmundsson skrifar
03. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hárkolluvillan: Af Tyrklandsferðum og gervigreind

Magnús Smári Smárason skrifar
28. janúar 2026 | kl. 10:00

Ekki „gervigreind“ heldur upplýsingaverksmiðjur

Magnús Smári Smárason skrifar
12. ágúst 2025 | kl. 14:30

Með tæknina mér við hlið: Hlutverk gervigreindar í skólastarfi

Ástrós Guðmundsdóttir skrifar
07. janúar 2025 | kl. 17:30

Aðventa

Magnús Smári Smárason skrifar
10. desember 2024 | kl. 16:16