Fréttir
Magnús Smári fjallar um gervigreind á mannamáli
03.02.2026 kl. 10:00
Magnús Smári Smárason; myndirnar birtust með síðasta pistli hans fyrir akureyri.net. Annarri hefur verið breytt með gervigreind!
Miðvikudaginn 4. febrúar kl. 17 verður boðið upp á áhugavert erindi á Amtsbókasafninu um gervigreind og síðan spjall að því loknu. Í erindinu verður fjallað um gervigreind á mannamáli, án tæknislangurs, eins og segir í kynningu á viðburðinum. Þetta er ekki bara fyrirlestur um tæknina, heldur líka sýnikennsla á því hvernig hún virkar, hvar hún bregst, og hvernig hægt er að nýta hana af skynsemi.
Erindið flytur Magnús Smári Smárason, verkefnisstjóri gervigreindar hjá Háskólanum á Akureyri (HA), en hann hefur lengi grúskað í gervigreind og flutt fjölda námskeiða og erinda um tæknina.
Magnús leiðir stefnumótun og innleiðingu á ábyrgri notkun tækninnar hjá HA og stýrði þar m.a. vinnu við fyrstu heildstæðu gervigreindarstefnu íslensks háskóla. Í kynningunni á viðburðinum segir að áður en Magnús snerist til tækninnar hafi hann starfað í 16 ár sem sjúkraflutningamaður og slökkviliðsmaður. Sú reynsla mótaði nálgun hans: Einblína á það sem virkar í raunveruleikanum, ekki bara á pappír.
Skoða má verkefni hans og fleira á vefsíðunni hans www.Smarason.is.
Magnús stýrir hlaðvarpinu Temjum tæknina og hefur ritað fjölda pistla um gervigreind á akureyri.net sem vakið hafa mikla athygli. Nýjasti pistill Magnúsar birtist 28. janúar og fjallar um þann misskilning að auðvelt sé að bera kennsl á allt sem unnið er með gervigreind.
- Pistill Magnúsar: Hárkolluvillan: Af Tyrklandsferðum og gervigreind