Fara í efni
Fréttir

Bílaklúbburinn ekki sáttur við skerðingu

Mynd af Facebook síðu Bílaklúbbs Akureyrar

Einar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Bílaklúbbs Akureyrar (BA), óttast að hagsmunir klúbbsins víki vegna stækkunar gagnavers atNorth. Samningar um nýtt tjaldsvæði klúbbsins og fjármögnun þess séu enn ófrágengnir. „Við höfum verulegar áhyggjur af því að fólk láti glepjast af stærð og umfangi fyrirtækisins. Ég er skíthræddur um að það telji sig geta náð í gegn með það sem því dettur í hug í krafti stærðar sinnar,“ segir Einar og vísar þar í fyrirhugaða stækkun lóðar gagnaversfyrirtækisins atNorth við Hlíðarvelli, sem hefur það í för með sér að lóð BA minnkar. Bæjarstjórn Akureyrar tekur skipulagstillöguna um lóðarstækkunina til handa atNorth til afgreiðslu síðdegis í dag, þriðjudag, þrátt fyrir að samkomulag um áhrif framkvæmdarinnar á starfsemi klúbbsins sé ekki í höfn.

Vonbrigði með afgreiðslu skipulagsráðs

Einar er sérstaklega ósáttur við að skipulagsráð hafi vísað málinu áfram til afgreiðslu bæjarstjórnar áður en lokið hefur verið við samninga um uppbyggingu nýs tjaldsvæðis fyrir klúbbinn. Skipulagsráð samþykkti þann 14. október að mæla með því við bæjarstjórn að breytingar á deiliskipulagi athafnasvæðisins við Hlíðarvelli og svæðis akstursíþrótta og skotæfinga á Glerárdal yrðu samþykktar með minniháttar breytingum.

Tillaga að breyttu deiliskipulagi vegna lóðarstækkunar atNorth hefur í för með sér að lóð Bílaklúbbs Akureyrar minnkar og það hefur áhrif á tjaldsvæði klúbbsins og framtíðaráform um lengingu spyrnubrautar til austurs. Mynd úr skipulagstillögu Akureyrarbæjar.

Í bókun ráðsins kemur fram að samkomulag við Bílaklúbb Akureyrar um minnkun lóðar BA vegna nýs reiðstígs sem færist inn fyrir lóðarmörk BA þurfi að liggja fyrir áður en lóðum verður úthlutað til atNorth. Einar segir hins vegar að samkomulagið þurfi að taka skýrt á því hvernig nýtt tjaldsvæði verði byggt upp og hvernig fjármögnun framkvæmdanna verði háttað. „Afgreiðsla ráðsins sem fór fram fyrir helgi olli miklum vonbrigðum. Það var búið að segja við okkur að þetta færi ekki áfram fyrr en samningar lægju fyrir,“ segir hann.

Lóð Bílaklúbbsins skerðist um 0,4 hektara

Í athugasemd BA við skipulagstillöguna kom fram að fyrirhuguð breyting skerði lóð félagsins um 0,4 hektara og geri núverandi tjaldsvæði, sem er austast á lóðinni, ónothæft í núverandi mynd. Byggja þurfi nýtt svæði, vinna að landmótun og leggja bílastæði. Einnig gæti þurft að færa þjónustuhús, salernisaðstöðu, fráveitu og raflagnir. Fram hefur komið að atNorth hefur tekið vel í að taka þátt í kostnaði við uppbyggingu nýs tjaldsvæðis og Einar segir að viðræður við atNorth hafi staðið yfir frá því í maí. Samtölin hafi í fyrstu gefið til kynna að hægt yrði að finna lausn, en þegar samningsdrög lágu fyrir á pappír hafi honum þótt vanta upp á að lykilatriði væru tryggð. „Þegar fór að koma að því að samningsdrög yrðu lögð fram til undirritunar féllu út stærstu loforðin. Þá sá maður að það var verið að stefna að því að gera sem minnst fyrir okkur,“ segir hann.

Framtíðaráform um lengingu spyrnubrautar einnig í hættu

En áhyggjur klúbbsins snúast ekki aðeins um tjaldsvæðið. Í athugasemd BA kemur einnig fram að breytingin geti takmarkað framtíðarnýtingu lands austan við núverandi spyrnubraut. Þar hefur staðið yfir uppfylling sem miðar að því að færa startlínu brautarinnar austar og lengja hana í samræmi við reglur um spyrnubrautir. Einnig hefur verið gert ráð fyrir hringakstursbraut samkvæmt eldri skipulagsáætlunum, ásamt bílastæðum og aðstöðu fyrir keppendur, keppnistæki og gesti. Skipulagstillagan skerðir þessi framtíðaráform félagsins og BA telur mikilvægt að horft sé til langtímaáhrifa skipulagsbreytingarinnar á starfsemi félagsins, en ekki aðeins þeirra breytinga sem þarf að gera til skamms tíma.

Einar Gunnlaugsson formaður Bílaklúbbs Akureyrar. Mynd: Þorgeir Baldursson

Einar bendir líka á að Akureyrarbær muni fá verulegar tekjur af landspildunni sem tekin er af BA vegna stækkunaráforma atNorth en klúbburinn fái engar bætur í staðinn. „Það eru óheyrilega miklir peningar sem Akureyrarbær fær í gatnagerðargjöld fyrir svona stóra byggingu en það er ekki hægt að byggja hana nema taka af lóðinni okkar og við fáum ekkert fyrir það,“ segir Einar.

„Við eigum að þora að standa í fæturna“

Einar segir ljóst að gagnaverið sé stórt uppbyggingarverkefni, en telur að stærð og fjárhagslegt bolmagn atNorth megi ekki verða til þess að hagsmunir þeirra sem þegar starfa á svæðinu séu látnir víkja. „Akureyrarbær á að líta stærra á sig en svo að hann þurfi að beygja sig fyrir stærð fyrirtækja. Við eigum að þora að standa í fæturna,“ segir hann.

Bílaklúbburinn vill að samkomulag liggi fyrir um endurhönnun tjaldsvæðisins, framkvæmdir og fjármögnun áður en skipulagsbreytingin verður samþykkt. Einar telur augljóst að atNorth hafi bolmagn til að taka þátt í að leysa þau vandamál sem stækkunin skapar, en það þurfi að tryggja með skýrum samningum.

„Ég hef verulegar áhyggjur af þessu,“ segir Einar en vonast þó enn til þess að hægt verði að ná niðurstöðu sem gerir bæði uppbyggingu gagnaversins og áframhaldandi starfsemi Bílaklúbbs Akureyrar mögulega.