Fara í efni
Gervigreind - pistlar

Sex hæðir of mikið að mati skipulagsráðs

Hugmyndir eigenda Hrísalundar ehf. um byggingu á lóðinni Hrísalundi 3. Skjáskot úr deiliskipulagstillögu.

Skipulagsráð telur hugmyndir Hrísalundar ehf. um byggingu fjölbýlishúss að Hrísalundi 3 fela í sér of háa byggingu. Fyrirliggjandi tillaga eigenda gerir ráð fyrir sex hæða húsi ásamt bílakjallara, en það er mat skipulagsráðs að lækka þurfi húsið um að lágmarki eina hæð. Skipulagsráð fer einnig fram á vinnslu vindgreiningar og nánari útlistun á skuggavarpi og útliti byggingarinnar.

Þetta kemur fram í afgreiðslu skipulagsráðs á erindi Hrísalundar ehf. þar sem lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Hrísalund 3-5. Akureyri.net hefur áður fjallað um hugmyndir að uppbyggingu á lóðinni þar sem Kristjánsbakarí var starfrækt umárabil. Í vinnslu er breyting á aðalskipulagi sem felur í sér að svæði sem nær til lóða við Hrísalund 1-5 verði skilgreint sem miðsvæði fyrir hreinlega atvinnustarfsemi með heimild fyrir íbúðir á efri hæðum.

Núverandi bygging að Hrísalundi 3 mun væntanlega víkja á næstu árum fyrir fjölbýlishúsi. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Bókun skipulagsráðs: „Að mati skipulagsráðs felur fyrirliggjandi tillaga í sér uppbyggingu á of háu húsi í samhengi við nánasta umhverfi. Að mati ráðsins þarf að lágmarki að lækka húsið um eina hæð. Við nánari útfærslu á mögulegri uppbyggingu þarf að vinna vindgreiningu til að sjá möguleg áhrif byggingarinnar á vindvist á svæðinu auk nánari útlistunar á skuggavarpi og útliti húss. Þá er einnig nauðsynlegt að leggja fram gögn sem sýna umfang uppbyggingarinnar í samhengi við nánasta umhverfi.“

Um menntakerfið á tímum gervigreindar

Magnús Smári Smárason skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Magnús Smári fjallar um gervigreind á mannamáli

Valur Sæmundsson skrifar
03. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hárkolluvillan: Af Tyrklandsferðum og gervigreind

Magnús Smári Smárason skrifar
28. janúar 2026 | kl. 10:00

Ekki „gervigreind“ heldur upplýsingaverksmiðjur

Magnús Smári Smárason skrifar
12. ágúst 2025 | kl. 14:30

Með tæknina mér við hlið: Hlutverk gervigreindar í skólastarfi

Ástrós Guðmundsdóttir skrifar
07. janúar 2025 | kl. 17:30

Aðventa

Magnús Smári Smárason skrifar
10. desember 2024 | kl. 16:16