Fara í efni
Ferðafélag Akureyrar

SA Víkingar máttu þola tap í fyrsta leik

Hafþór Andri Sigrúnarson skoraði eina mark SA Víkinga í fyrsta leik liðsins á tímabilinu. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

SA Víkingar máttu þola tap í fyrsta leik liðsins í Toppdeild karla í íshokkí í gærkvöld. Fjölnir skoraði fjögur mörk gegn einu marki Akureyringa.

Heimamenn í Fjölni komust yfir á fyrstu mínútu leiksins og var það eina mark fyrsta leikhlutans. Hafþór Andri Sigrúnarson jafnaði fyrir SA í öðrum leikhluta, en nokkrum mínútum síðar kom annað mark Fjölnis. Strax á fyrstu mínútu þriðja leikhlutans kom þriðja mark heimamanna og svo það fjórða nokkru síðar. 

Þrátt fyrir ágæta frammistöðu varð uppskeran þó engin því Akureyringum gekk illa að koma pökknum í netið. 

Fjölnir

Mörk/stoðsendingar: Jere Koikkalainen 1/1, Jón Helgason 1/0, Hilmar Sverrisson 1/0, Gabríel Egilsson 1/0, Krisjanis Abolins-Abols 0/1, Róbert Pálsson 0/1, Viggó Hlynsson 0/1.
Varin skot: Tuomas Heikkonen 22 af 23 (95,65%), Þórir Aspar 8 af 8 (100%).
Refsingar: 10 mínútur.

SA

Mörk/stoðsendingar: Hafþór Andri Sigrúnarson 1/0, Matthías Már Stefánsson 0/1.
Varin skot: Róbert Steingrímsson 24/28 (85,71%).
Refsingar: 12 mínútur.

NÆST:

  • 26. september: U20 - SA
  • 27. september: SA - U20

Sparifataganga FFA á Súlur – MYNDIR

Skapti Hallgrímsson skrifar
17. ágúst 2026 | kl. 09:00

FFA 90 ára: Súluferð í sparifötunum

Valur Sæmundsson skrifar
02. ágúst 2026 | kl. 17:00

Afmælisferð FFA í Dreka – MYNDIR

Valur Sæmundsson skrifar
28. júlí 2026 | kl. 10:15

Forsetinn heimsótti FFA – afmælishátíð í Dreka

Skapti Hallgrímsson skrifar
24. júlí 2026 | kl. 10:30

Teljari kominn á leiðina upp að Skólavörðu

Snæfríður Ingadóttir skrifar
16. júlí 2026 | kl. 08:00

Landsleikir, Allir með, skautasýning og ganga

Haraldur Ingólfsson skrifar
02. júní 2026 | kl. 06:00