Afmælisferð FFA í Dreka – MYNDIR
Síðastliðinn sunnudag bauð Ferðafélag Akureyrar (FFA) félagsmönnum og velunnurum upp á sérstakan afmælisviðburð við Öskju og Dreka, en þar hefur félagið rekið gistiskála um langt árabil. Boðið var upp á um tveggja tíma gönguferð að Öskjuvatni og Víti og síðan kaffiveitingar að göngu lokinni.
Í tilefni af 90 ára afmæli FFA á þessu ári stendur félagið fyrir ýmsum afmælisviðburðum og það er vel við hæfi að einn þeirra sé haldinn í Dreka. Dreki heitir fyrsti skálinn sem reistur var á svæðinu, árið 1968, og nú á FFA alls fimm hús þar. Félagið hefur verið með skálavörslu þarna á sumrin síðan árið 1986 og smám saman bætt í húsakostinn. Á vefsíðu FFA kemur fram að árið 2001 var byggt veglegt snyrtihús með sturtum og 2005 var skálinn Askja tekinn í notkun. Nýtt skálavarðahús var byggt 2007 og nefnt Fjólubúð, eftir Fjólu Kristínu Helgadóttur sem var skálavörður í Drekagili um árabil. Árið 2019 hófst bygging þjónustuhúss á svæðinu. Það var tekið í fulla notkun sumarið 2023 og þar er veitingasala yfir sumartímann.

Húsakostur FFA við Drekagil. Frá vinstri er nýja þjónustuhúsið sem ber nafnið Víti, þar við hliðina er snyrtihúsið, síðan Askja og loks elsti skálinn, Dreki. Myndin er tekin frá skálavarðahúsinu Fjólubúð. Mynd: Hafdís G. Pálsdóttir.
Fyrir utan þau sem komu á eigin bílum fóru um 35 manns með rútu á vegum FFA upp í Dreka á sunnudaginn. Að sögn Gunnars Más Gunnarssonar, formanns FFA, sá Þorvaldur Rafn Kristjánsson um aksturinn í rútu frá Mývatn Tours og var þetta tólfta ferð hans uppeftir í þessum mánuði. „Þóroddur Þóroddson frá Grænavatni var leiðsögumaður í rútunni og fræddi fólk um það sem fyrir augu bar. Síðan tók Kristrún Lilja Sveinsdóttir landvörður á móti okkur við Öskju,“ segir Gunnar Már.
Eftir leiðsögn Kristrúnar Lilju um Öskjuvatn og Víti var gestum boðið í afmæliskaffi og síðan var haldið heim á leið með rútunni.
Gunnar Már tók myndir í gönguferðinni:
















