Sparifataganga FFA á Súlur – MYNDIR
Ferðafélag Akureyrar (FFA) varð 90 ára á árinu og hefur af því tilefni efnt til fjölbreyttra afmælisviðburða eins og akureyri.net hefur fjallað um. Ein afmælisferðin var sparifataganga á Súlur í síðustu viku – þriðjudaginn 11. ágúst. Veðrið lék við prúðbúinn hópinn og á toppi Súlna var slegið upp hlaðborði með girnilegum kræsingum, þar sem allir lögðu eitthvað til.
Um þrjátíu manns gengu á bæjarfjallið í sparifötunum og hinn margreyndi fararstjóri Konráð Gunnarsson sagði frá ýmsum fyrri ferðum félagsins. Þessi óvenjulega gönguferð var síðasti afmælisviðburður FFA, áður var haldin fjölmenn samkoma í Amtsbókasafninu, og farin afmælisferð upp að Öskju og Dreka.
Vert er að nefna að meðan hinn prúðbúni hópur kleif bæjarfjallið – í 19. aldar sparifötum – fór annar frískur hópur á tindinn Uppsalahnjúk á Staðarbyggðarfjalli. Um var að ræða fyrstu ferð FFA sem skipulögð er sérstaklega fyrir aldurshópinn 20-30 ára. Fararstjóri var Ómar Ívarsson og þótti ferðin afar vel heppnuð. Félagið hefur fullan hug á að halda áfram með ferðir af því tagi að sögn Gunnars Más Gunnarssonar, formanns FFA.