FFA 90 ára: Súluferð í sparifötunum
Ferðafélag Akureyrar (FFA) áformar sérstaka sparifatagöngu á bæjarfjallið Súlur fimmtudagskvöldið 6. ágúst. FFA varð 90 ára á árinu og hefur af því tilefni efnt til fjölbreyttra afmælisviðburða og þessi óvenjulega gönguferð er ein af afmælisferðunum.
Í frétt á vefsíðu FFA um gönguferðina kemur fram að fyrirvari sé gerður um að veður verði gott, því félagið vilji fá fullt af fólki með í þessa ferð. Brottför er áformuð kl. 19 frá Súlubílastæðinu en þau sem vilja geta mætt við skrifstofu FFA, Strandgötu 23, kl. 18:30 þar sem hægt er að safnast saman í bíla.
Í fréttinni kemur fram að gengið sé eftir merktri og nokkuð auðveldri gönguleið á fjallið og af Súlum sé afar fallegt útsýni. Þá er tekið fram að göngubúnaður þurfi að miðast við færi og aðstæður en þátttakendur eru beðnir um að koma í svolitlum sparifatnaði ef mögulegt er. Einnig eru þeir beðnir um að leggja eitthvað smávegis til í Pálínuboð þegar upp er komið en lagður verður út dúkur fyrir veitingar.
Gönguleiðin fram og til baka er um 11-12 km og gönguhækkun 880 metrar. Fararstjóri verður Gunnar Már Gunnarsson, formaður FFA, og þátttaka í ferðinni er ókeypis og öllum opin.