Forsetinn heimsótti FFA – afmælishátíð í Dreka
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, heimsóttu Ferðafélag Akureyrar (FFA) í gær í tilefni 90 afmælis félagsins. Hjónin litu síðan við á Landsmóti skáta að Hömrum og í kvöld verða þau viðstödd formlega setningu bæjarhátíðarinnar Mærudaga á Húsavík.
Ferðafélag Akureyrar var stofnað 8. apríl árið 1936 og tímamótanna er minnst með ýmsum hætti, svo sem fyrirlestrum, skráningu gönguleiða og greinum á akureyri.net fyrr á árinu þar sem fjallað var um eitt og annað úr merkilegri sögu félagsins – sjá hér: Ferðafélag Akureyrar. Á sunnudaginn verður svo afmæliskaffi FFA í einum skála félagsins, Dreka í Drekagili.
Öllum félagsmönnum og velunnurum FFA er boðið á þennan sérstaka afmælisviðburð á fjöllum; í Öskju og Dreka. Dagskráin hefst með samverustund og göngu að Öskjuvatni og Víti. Gengið verður frá bílastæðinu við Vikraborgir kl. 13.00 – það er um 2 klukkustunda ganga í það heila. Að göngu lokinni er síðan ekið aftur í Drekagil og þar boðið upp á afmæliskaffi kl 15:30.