Fara í efni
Ferðafélag Akureyrar

Rúta frá Bílaklúbbnum að skíðasvæðinu

Svæði Bílaklúbbs Akureyrar við Hlíðarfjallsveg. Mynd af vef skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli.

Stjórnendur skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli hafa gripið til þess ráðs að bjóða upp á rútuferðir að skíðasvæðinu á morgun, laugardag, frá svæði Bílaklúbbs Akureyrar við Hlíðarfjallsveg, þar sem fólki gefst kostur á að leggja bílum.

Mikill fólksfjöldi var í Hlíðarfjalli í dag og bílar mun fleiri en komust fyrir á hefðbundnum stæðum. Af þeim sökum var bílum lagt drjúgan spöl meðfram Hlíðarfjallsvegi, langt niður í síðustu beygju áður en komið er á svæðið.

  • Fyrsta ferðin á morgun verður farin kl. 09:30, önnur ferð kl. 10:00, þriðja ferð kl. 10:30 og fjórða kl. 11:00
  • Eftir það mun rútan keyra á klukkustunda fresti fram og tilbaka allan daginn og verður síðasta ferð frá Hlíðarfjalli niður á stæði kl. 16:30.
  • „Viljum vinsamlegast benda fólki á að vanda sig við að leggja bílum í bílastæði upp á skíðasvæði til þess að nýta betur stæðin,“ segir í tilkynningu frá skíðasvæðinu í dag.

LÖNG RÖÐ Í FEBRÚAR
Óvenu löng bílaröð myndaðist á leiðinni upp í Hlíðarfjall laugardaginn 21. febrúar, þegar Þorgeir Baldursson tók þessa mynd klukkan 11 að morgni. Röðin náði þá frá skíðasvæðinu niður fyrir frístundabyggðina Hálönd sem er miðju vegu milli efstu byggðar og skíðasvæðisins.

„Á leiðinni upp eftir er bíll við bíl og stæðin okkar eru full. Bílafjöldinn er það sem erfiðast er við að eiga en allt gengur vel á svæðinu. Lyfturnar ganga fínt,“ sagði Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður skíðasvæðisins, við akureyri.net þennan dag.

Landsleikir, Allir með, skautasýning og ganga

Haraldur Ingólfsson skrifar
02. júní 2026 | kl. 06:00

Af húsaflutningum Ferðafélags Akureyrar

Hjalti Jóhannesson skrifar
04. apríl 2026 | kl. 10:30

Haldið á brattann

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. mars 2026 | kl. 06:00

Bræðrafell

Hjalti Jóhannesson skrifar
07. mars 2026 | kl. 06:00

Gunnar Már formaður Ferðafélagsins

Valur Sæmundsson skrifar
03. mars 2026 | kl. 11:00

Smíði og flutningur gamla Lamba á Glerárdal árið 1975

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. febrúar 2026 | kl. 06:00