Fara í efni
Ferðafélag Akureyrar

Fjallakonungurinn krýndur í dag

Félagar í Team23 vélsleðaliðinu halda svokallað Hillcross í Hlíðarfjalli í dag, Hvítasunnudag; keppnina kalla þeir Fjallakonunginn og reiknað er með mikilli skemmtun og spennu, því yfir 50 keppendur eru skráðir til leiks.

Brautin hefst við enda Hjallabrautalyftunnar og í henni eru bæði stökkpallar og beygjur. Ekið verður upp með Strýtuskálanum og áfram upp Norðurbakkann að endamarkinu.

Keppni hefst kl. 18:00 en stólalyftan Fjarkinn er opin frá kl. 17:00 til 22:00. Miði í lyftuna og aðgangur að áhorfendapöllum kostar 3.000 krónur og í tilkynningu eru áhorfendur hvattir til að mæta sem fyrst og koma sér fyrir. Veitingastala verður í Strýtuskálanum, plötusnúður verður á pallinum og „óvæntur gestur mætir á staðinn eftir verðlaunaafhendingu og heldur uppi stemmingu með DJ Ayobe,“ segir í tilkynningu. „Hlökkum til að sjá sem flesta á þessu vetrarslútti sleðamennskunnar!“ segir þar.

Landsleikir, Allir með, skautasýning og ganga

Haraldur Ingólfsson skrifar
02. júní 2026 | kl. 06:00

Af húsaflutningum Ferðafélags Akureyrar

Hjalti Jóhannesson skrifar
04. apríl 2026 | kl. 10:30

Haldið á brattann

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. mars 2026 | kl. 06:00

Bræðrafell

Hjalti Jóhannesson skrifar
07. mars 2026 | kl. 06:00

Gunnar Már formaður Ferðafélagsins

Valur Sæmundsson skrifar
03. mars 2026 | kl. 11:00

Smíði og flutningur gamla Lamba á Glerárdal árið 1975

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. febrúar 2026 | kl. 06:00