Gunnar Már formaður Ferðafélagsins
Á aðalfundi Ferðafélags Akureyrar (FFA) í gær var kjörin ný stjórn félagsins. Nýr formaður FFA er Gunnar Már Gunnarsson en Þorgerður Sigurðardóttir fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Auk Gunnars Más skipa stjórn félagsins þau Einar Hjartarson gjaldkeri, Þorbjörg Þorsteinsdóttir ritari, Fjóla K. Helgadóttir og Þorvaldur Rafn Kristjánsson. Nýir varamenn í stjórn eru Jón Kristinn Helgason og Arna Ívarsdóttir en auk Þorgerðar hætti Árni Gíslason sem lengi var varastjórnarmaður.

Þorgerður Sigurðardóttir, fráfarandi formaður FFA og Gunnar Már Gunnarsson, nýkjörinn formaður. Mynd: Facebook-síða FFA.
Þorgerður hefur gegnt starfi formanns síðastliðin sjö ár en segir þó ekki skilið við félagsstörfin því hún heldur áfram sem formaður ferðanefndar félagsins. Þá var Einar Hjartarson gerður að kjörfélaga FFA á aðalfundinum, sem var vel sóttur.
Ferðafélag Akureyrar 90 ára
Þess má geta að Ferðafélag Akureyrar fagnar 90 ára afmæli sínu á árinu en það var stofnað 8. apríl árið 1936. Haldið verður upp á tímamótin með ýmsum hætti, svo sem fyrirlestrum, skráningu gönguleiða og afmæliskaffi í skála félagsins í Drekagili næstkomandi sumar.
Í tilefni afmælisins verða einnig birtir pistlar með upprifjun úr sögu félagsins hér á akureyri.net annan hvern laugardag og þegar hafa fyrstu tveir pistlarnir litið dagsins ljós: