Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Mögnuð appelsínugul minningarfylking

Appelsínugul fylking við Skautahöllina á Akureyri á laugardagsmorgni. Gengið var til minningar um Sólveigu Huldu Valgeirsdóttur og til stuðnings hlaupurum í Reykjavíkurmaraþoninu sem studdu við Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri. Myndir fengnar af Facebook-síðu íshokkídeildar Skautafélagsins.

Söfnun hlaupara sem tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoninu á laugardag gekk afar vel og fór vel fram yfir markmið hópsins. Sama dag komu um 100 manns saman við Skautahöllina á Akureyri til stuðnings hlaupurunum og gengu, skokkuðu eða hlupu hring frá Skautahöllinni upp að Sjúkrahúsinu og aftur niður í höll til minningar um Sólveigu Huldu Valgeirsdóttur og Sólveigu Huldu Egilsdóttur, dótturdóttur hennar – Hlaupið til minningar um Sólveigu Huldu.

Alls hafa safnast rúmar 8,8 milljónir króna á vegum hlaupahóps og stakra hlaupara fyrir Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri til minningar um Sólveigu Huldu. Hópurinn setti sér markmið að ná upp í fimm milljónir og tókst svo sannarlega að ná því og gott betur. Auk þess hlupu fleiri og hétu á Hollvinasamtökin og upphæðin að söfnunum þeirra hlaupara meðtöldum komin í tæpar 9,2 milljónir króna. Rétt er að geta þess að enn er hægt að styrkja þó svo hlaupinu sjálfu sé lokið.

Mögnuð appelsínugul fylking

Á vef Skautafélags Akureyrar og Facebook-síðu íshokkídeildar félagsins segir að mögnuð, appelsínugul fylking úr samfélaginu hafi sprett af stað frá Skautahöllinni, en eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem fengnar eru af Facebook-síðu íshokkídeildar klæddist fólkið sérmerktum, appelsínugulum bolum. Í hópnum voru sjálfboðaliðar úr hópi félagsins, dómarar, leikmenn, stjórnarfólk, sem og vinir og velunnarar Sólveigar Huldu og fjölskyldu hennar.

Hópurinn gekk, skokkaði eða hljóp upp Miðhúsabraut, norður Þórunnarstrætið að sjúkrahúsinu, þaðan niður Spítalaveginn og suður Aðalstrætið og endað þar sem hópurinn hóf hringinn, við Skautahöllina. Í þessum hópi mun hafa verið um 95 ára aldursmunur á yngsta og elsta þátttakandanum, yngsti rétt þriggja mánaða og elsti að nálgast 95 árin.

„Það var gott að hittast, hreyfa sig og njóta stundarinnar í minningu Sollu,“ segir að lokum á vef Skautafélagsins.

Myndirnar í albúminu hér að neðan eru fengnar af Facebook-síðu íshokkídeildar Skautafélagsins, en Sólveig Hulda var um áratuga skeið ötull sjálfboðaliði í íshokkístarfinu. 

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45