Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Hollvinir SAk fá hálfa milljón frá atNorth

Aftari röð frá vinstri: Ragnheiður Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga á SAk, Arnar Árnason, Hermann Haraldsson og Kristín Sigfúsdóttir úr stjórn Hollvinasamtaka SAk, Konráð Gylfason framkvæmdastjóri rekstrar og klínískrar stoðþjónustu á SAk, og Guðjón Hauksson, forstjóri SAk. Fremst eru þau Aron Ingi Gautason og Hrefna Hallgrímsdóttir frá atNorth. Mynd af vefsíðu SAk.

Gagnaversfyrirtækið atNorth hefur styrkt Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) um 500.000 krónur. Styrkurinn tengist þátttöku starfsfólks SAk í Akureyrarhlaupinu í sumar, þar sem sjúkrahúsið var meðal vinnustaða sem tóku þátt í sérstakri áskorun. Í kjölfarið fékk SAk að velja góðgerðarmál sem atNorth myndi styðja og urðu Hollvinasamtök sjúkrahússins fyrir valinu.

„Markmið Hollvina Sjúkrahússins á Akureyri er að styðja og styrkja starfsemi sjúkrahússins. Tækjakaup fyrir sjúkrahúsið eru meðal mikilvægustu verkefna félagsins og hefur stuðningur þess í gegnum árin skipt miklu máli við að efla aðbúnað og þjónustu á SAk,“ segir í frétt á vefsíðu SAk.

„Við kunnum atNorth bestu þakkir fyrir þessa rausnarlegu gjöf. Það er jafnframt ánægjulegt að öflug þátttaka starfsfólks SAk í Akureyrarhlaupinu hafi orðið til þess að þessi styrkur skuli renna til Hollvina SAk,“ segir Guðjón Hauksson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, m.a. í fréttinni.

Kristín Sigfúsdóttir, ritari stjórnar Hollvina SAk, segir styrkinn mikilvægan og bendir á að stuðningur Hollvina nýtist meðal annars til tækjakaupa sem gagnast sjúklingum og starfsfólki til framtíðar. „Við hjá Hollvinum SAk erum afar þakklát bæði atNorth fyrir styrkinn og starfsfólki SAk fyrir þátttökuna sem gerði þetta mögulegt. Jafnframt viljum við minna á að það er einfalt að gerast Hollvinur SAk. Árgjaldið er 6.000 krónur og er innheimt einu sinni á ári, í maí. Við hvetjum alla sem vilja styðja við starfsemi sjúkrahússins til að ganga til liðs við okkur,“ segir Kristín Sigfúsdóttir.


Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45