Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Rúm milljón til KAON eftir bleika leikinn

Nokkrir leikmenn SA Víkinga, karlaliðs Skautafélags Akureyrar í íshokkí, afhentu í dag fulltrúum Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis 1.150 þúsund krónur, sem er afrakstur bleika leiksins eða hundrað krónu leiksins, viðureignar SA og SR síðastliðinn laugardag þar sem áhorfendum gafst kostur á frjálsum framlögum. 

Hokkístrákarnir mættu með prentaða risaávísun með áletraðri upphæð, 1.075.000 kr., en framlög héldu áfram að berast inn á söfnunarreikninginn eftir að ávísunin var prentuð og endanleg upphæð því 75.000 krónum hærri en þar stendur. 

Í pistli á Facebook-síðu íshokkídeildarinnar er öllum þeim sem mættu, keyptu happdrættismiða, tóku þátt í pökkakasti eða lögðu sitt af mörkum færðar innilegar þakkir, ásamt tveimur fyrirtækjum, Eltech ehf. og Múrey ehf., sem studdu við þetta verkefni félagsins. 

„Við vissum hvað SA samfélagið og Akureyringar gætu gert, en þið fóruð fram úr öllum okkar væntingum. Takk!“ segir einnig í pistli íshokkídeildarinnar.

Hokkístrákarnir ásamt starfsfólki KAON. Hulda Sædís Bryngeirsdóttir, Heiðar Gauti Jóhannsson, Steingrímur Karlsson, Jóhann Már Leifsson, Pétur Elvar Sigurðsson, Hafþór Andri Sigrúnarson, Eva Björg Óskarsdóttir og Jenný Valdimarsdóttir. Mynd: íshokkídeild SA.

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45