Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Hallgrímur lætur af starfi þjálfara KA

Hallgrímur Jónasson eftir að KA varð bikarmeistari undir hans stjórn árið 2024. Það var fyrsti bikarmeistaratitill félagsins í knattspyrnu. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Hallgrímur Jónasson er hættur sem þjálfari meistaraflokks KA í knattspyrnu. Þetta var tilkynnt á vef KA síðdegis í dag. Hallgrímur, sem hefur verið við stjórnvölinn síðustu fjögur ár, átti eftir eitt ár af samningi en hann og knattspyrnudeild KA „hafa komist að samkomulagi um starfslok Hallgríms,“ eins og það er orðað í tilkynningunni.

KA varð bikarmeistari í fyrsta skipti í sögu félagsins árið 2024 undir stjórn Hallgríms og besti árangur liðsins á Íslandsmótinu var annað sæti í Bestu deildinni 2022. 

Hallgrímur gekk upphaflega til liðs við KA sem leikmaður fyrir tímabilið 2018, eftir farsælan atvinnumannaferil erlendis. Hann var ráðinn aðstoðarþjálfari árið 2020 og lék áfram með liðinu en tók við sem aðalþjálfari um miðjan september 2022 eftir að Arnar Grétarsson hvarf á braut. Hallgrímur stýrði liðinu þá í síðustu fimm leikjunum. 

KA varð í sjöunda sæti Bestu deildarinnar þrjú ár í röð, frá 2023 til 2025 en örlög liðsins í ár voru að falla úr deildinni, eftir að það varð í næst neðsta sæti.

Smellið hér til að sjá tilkynninguna á vef KA

Mynd sem birtist með tilkynningunni á vef KA í dag.

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45