Íslendingar ganga að kjörborðinu í dag og velja sér fulltrúa til þess að stýra sveitarfélögum landsins næstu fjögur ár. Á Akureyri eru 15.547 á kjörskrá að þessu sinni en voru 14.688 fyrir fjórum árum.
- Á Akureyri verður kosið í Verkmenntaskólanum.
- Í Hrísey er kosið í Hríseyjarskóla.
- Í Grímsey er kosið í félagsheimilinu Múla.
Kjörfundur stendur yfir frá klukkan 9.00 til 22.00 en í Hrísey og Grímsey verður opið að lágmarki til klukkan 17.30.
Ástæða er til þess sem endranær að hvetja alla til þess að nýta sér kosningaréttinn; sá réttur er því miður ekki sjálfsagður alls staðar. Stundum er fólk hvatt til þess að kjósa rétt. Munið að allir sem nýta sér kosningaréttinn á annað borð kjósa rétt!
Gleðilega hátíð!
- Á vef Akureyrarbæjar er kjósendum í Hrísey og Grímsey bent á að kjörstöðum þar kunni að verða lokað fyrr að uppfylltum skilyrðum kosningalaga. „Þeir eru því hvattir til að mæta á kjörstað fyrir kl. 17:00. Kjörstaðir í Hrísey og Grímsey verða þó að lágmarki opnir til kl. 17:30 nema allir á kjörskrá hafi kosið fyrir þann tíma.“
- Skipting kjósenda í kjördeildir fer eftir búsetu samkvæmt „skráðu lögheimili hjá Þjóðskrá þann 8. apríl 2026“ og eru kjósendur beðnir um að kynna sér í hvaða kjördeild þeim ber að kjósa.
- Hægt er að fletta upp í kjörskrá á vef Þjóðskrár á slóðinni: www.kosning.is
- Kjósendum ber að sýna persónuskilríki á kjörfundi; nafnskírteini, ökuskírteini eða vegabréf. Rafræn skilríki eru ekki tekin gild nema þeim sé framvísað í gegnum island.is appið.