Fara í efni
Umræðan

Frambjóðendur hafa verið iðnir við skriftir

Mynd: Þorgeir Baldursson

Kosið verður til bæjarstjórnar Akureyrar eins og annarra sveitarstjórna landsins á morgun, laugardaginn 16. maí. Frambjóðendur hafa verið duglegir við lyklaborðið og hver greinin á fætur annarri borist akureyri.net til birtingar undanfarið. Fáeinar kosningagreinar hafa einnig borist frá öðrum en frambjóðendum.

Umfjöllunarefnið er fjölbreytt og ástæða er til að vekja athygli lesenda – kjósenda – á umræddu lesefni í aðdraganda kosninganna. Öllum greinunum  hefur verið deilt á Facebook síðu akureyri.net en þær má líka finna með því að smella á þennan hlekk:


HVAR OG HVENÆR ER KOSIÐ?

  • Á Akureyri verður kosið í Verkmenntaskólanum
  • Í Hrísey er kosið í Hríseyjarskóla.
  • Í Grímsey er kosið í félagsheimilinu Múla.

Kjörfundur hefst klukkan 9.00 og lýkur eigi síðar en klukkan 22.00.

  • Á vef Akureyrarbæjar er kjósendum í Hrísey og Grímsey bent á að kjörstöðum þar kunni að verða lokað fyrr að uppfylltum skilyrðum kosningalaga. „Þeir eru því hvattir til að mæta á kjörstað fyrir kl. 17:00. Kjörstaðir í Hrísey og Grímsey verða þó að lágmarki opnir til kl. 17:30 nema allir á kjörskrá hafi kosið fyrir þann tíma.“
  • Skipting kjósenda í kjördeildir fer eftir búsetu samkvæmt „skráðu lögheimili hjá Þjóðskrá þann 8. apríl 2026“ og eru kjósendur beðnir um að kynna sér í hvaða kjördeild þeim ber að kjósa.
  • Hægt er að fletta upp í kjörskrá á vef Þjóðskrár á slóðinni: www.kosning.is
  • Kjósendum ber að sýna persónuskilríki á kjörfundi; nafnskírteini, ökuskírteini eða vegabréf. Rafræn skilríki eru ekki tekin gild nema þeim sé framvísað í gegnum island.is appið.

Allt að gerast!

Þórhallur Jónsson skrifar
15. maí 2026 | kl. 19:45

Leikskólar fyrir öll: ekki bara þau sem hafa svigrúm

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir og Stefán Oddur Hrafnsson skrifa
15. maí 2026 | kl. 17:30

„Þegar bjallan hringir“

Herdís Júlía Júlíusdóttir skrifar
15. maí 2026 | kl. 14:30

Endurheimtum sjálfstæði félagsmiðstöðva

Sigtryggur Ellertsson skrifar
15. maí 2026 | kl. 14:00

Kæru íbúar Akureyrar, Hríseyjar og Grímseyjar

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
15. maí 2026 | kl. 13:45

Húsnæðismál 60 ára+ á Akureyri 2026–2036

Benedikt Sigurðarson skrifar
15. maí 2026 | kl. 11:30