Fara í efni
Umræðan

Verkefnið „Göngum í skólann“ hófst í dag

Gígja Hólmgeirsdóttir á gangbrautinni yfir Þórunnarstræti við norðvesturhorn Íþróttahallarinnar um áttaleytið í morgun. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Foreldrar voru áberandi við nokkra af grunnskólum bæjarins í morgun þegar verkefnið Göngum í skólann hófst í 19. skipti hér á landi. Í nágrenni Brekkuskóla voru þeir til dæmis við gangbrautir yfir Þórunnarstræti, bæði á gatnamótunum við Hrafnagilsstræti og við norðvesturhorn Íþróttahallarinnar. 

„Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni,“ segir á vefnum www.gongumiskolann.is. „Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.“

Héðinn Svarfdal var til taks á gangbraut við Skólastíg, þar sem ekið er inn á bílastæðið við Íþróttahöllina.

Það er Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands ásamt sem stendur að verkefninu ásamt samtarfsaðilum. Á síðasta ári tóku milljónir barna frá yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt í gegnum árin; fyrsta árið voru þátttökuskólar 26 en alls 83 skólar skráðu sig til leiks árið 2024.

Átaksverkefnið er orðið að árlegum viðburði í mörgum skólum „og býður upp á lærdómsríka og skemmtilega leið fyrir nemendur til að fræðast um umferðarreglur, öryggi og umhverfismál,“ segir í tilkynningunni á vef verkefnisins.

Gígja Hólmgeirsdóttir á gangbrautinni yfir Þórunnarstræti við norðvesturhorn Íþróttahallarinnar.

Göngum í skólann líkur miðvikudaginn 1. október, sem er alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn. Samstarfs og styrktaraðilar Göngum í skólann eru European Commission, Samgöngustofa, Heimili og skóli, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Embætti landlæknis, Ríkislögreglustjóri og Sysavarnarfélagið Landsbjörg.

Á vef Akureyrarbæjar eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að sýna gott fordæmi og taka virkan þátt í verkefninu með því að fylgja börnunum gangandi eða hjólandi í skólann. 

Bæjarstjórnar-klúður í húsnæðismálum

Benedikt Sigurðarson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30

Farsælt samstarf styður við börn og fjölskyldur í Norðurþingi

Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Sigrún V. Heimisdóttir og Elín Dröfn Þorvaldsdóttir skrifa
02. mars 2026 | kl. 06:00

Akureyri – höfuðstaður Norðurlands með framtíðarsýn

Halla María Sveinbjörnsdóttir skrifar
01. mars 2026 | kl. 17:00

Sterkir innviðir skapa sterkt samfélag

Arna Rut Gunnarsdóttir skrifar
27. febrúar 2026 | kl. 18:00

Skólastarf Akureyrarbæjar styrkt með farteymi sérfræðinga

Heimir Örn Árnason skrifar
26. febrúar 2026 | kl. 11:30

Gervigreind – lykillinn að hagræðingu sveitarfélaga

Stefán Þór Stefánsson skrifar
26. febrúar 2026 | kl. 10:10