Varla sást bóklaus nemandi í Glerárskóla
Nemendur Glerárskóla hafa sökkt sér niður í bókalestur síðustu daga, að því er fram kemur fram á vef skólans. „Efnt var til sérstaks lestrarátaks meðal krakkanna sem sannarlega sló í gegn. Átakið varði í tvær vikur og lesið var af kappi í skólanum og heima,“ segir í umfjöllun um átakið á vefnum.
„Á hverjum degi átaksins var birt súlurit á göngum skólans sem sýndi hversu mikið hver bekkur var búinn að lesa. Á gangi skólans og í skólastofum voru niðurteljarar sem sýndu hversu langt var eftir af átakinu. Ýmislegt var gert til þess að auka stemninguna hjá nemendum og hvetja til lestrar.“
Mikil stemning
„Mikil lestrarstemning skapaðist í skólanum meðan á átakinu stóð. Varla sást bóklaus nemandi. Alls lásu nemendur skólans samtals í 1.841 klukkustund sem gerir rétt um 6 klukkustunda meðallestur á nemanda og þá eru allir taldir með, þeir sem eru að byrja að lesa í fyrstu bekkjum skólans, jafnt sem fluglæsir unglingar.“
Lestrarátakið var sett upp sem keppni milli bekkja. Nemendur fengu klukkur sem þeir notuðu til að skrá lestrartímann sinn.
- Krakkarnir í 5. bekk lásu mest meðan á átakinu stóð eða 9,27 klukkustundir hver nemandi að jafnaði eða alls 204 klukkustundir. Krakkarnir í fimmta bekk eru því Glerárskólameistarar í lestri.
- Á yngsta stigi var kappið mest hjá 4. bekk, sem nú eru lestrarhestar yngsta stigs en þar lásu krakkarnir 5,21 klukkustund að jafnaði.
- Spennan var mikil á unglingastigi en lestrarhestar stigsins þar eru nemendurnir í 10. SVB sem lásu að meðaltali 8,53 klukkustundir meðan á átakinu stóð.
Krökkunum var gert að velja bók við hæfi, helst bók sem þeim þótti krefjandi. Margir þátttakendur skráðu á klukkurnar sínar hvar þeir lásu og þar kom margt skemmtilegt fram, segir á vef Glerárskóla. „Nefndir voru staðir eins og í flugvél, Í Reykjavík, í sumarbústað, hjá afa og ömmu, svo eitthvað sé nefnt. Fullvíst er að átakið er mikil lestrarhvatning og auki um leið lesfærni og lesskilning nemendanna.“
Í lok umfjöllunarinnar segir: „Starfsfólk skólans tók einnig þátt í átakinu en það hafði ekki roð við lestrarþyrstum nemendum“!

Jákvæð áhrif millilandaflugs til Akureyrar eru miklu meiri en þú heldur
Opið bréf til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar
Eflum SAk
Tryggjum öryggi eldri borgara