Fara í efni
Umræðan

Fyrsta tap SA-kvenna kom í Laugardalnum

SA-konur fögnuðu ekki sigri í gær, töpuðu fyrsta leik sínum á leiktíðinni. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Kvennalið SA í íshokkí tapaði sínum fyrsta leik á leiktíðinni þegar liðið mætti SR í Skautahöllinni í Laugardal í gærkvöld. Eitt mark leit dagsins ljós og skildi liðin að, þó ekki hafi vantað færin.

Fyrstu tvær loturnar voru markalausar, en engu að síður mikil barátta og nóg af færum, leikurinn fjörugur þó svo bið hafi orðið eftir mörkunum. Það var svo á upphafsmínútum þriðju og síðustu lotunnar sem Ragnhildur Kjartansdóttir skoraði eina mark leiksins með stoðsendingu frá Gunnborgu Petru Jóhannsdóttur, en báðar eru reyndar fyrrum liðsmenn SA. 

Leikmenn SA gerðust sífellt aðgangsharðari þegar leið á þriðju lotuna, en það skilaði pökknum þó ekki í mark Reykvíkinga og niðurstaðan því 1-0 tap, fyrsti tapleikur liðsins í vetur og ekki á hverjum degi sem liðið nær ekki að skora mark. 

SR - SA 1-0 (0-0, 0-0, 1-0)

SR

Mark/stoðsending: Ragnhildur Kjartansdóttir 1/0, Gunnborg Petra Jóhannsdóttir 0/1.
Varin skot: Julianna Thomson 35 af 35 (100%).
Refsingar: 2 mínutur.

SA

Varin skot: 23 af 24 (95,83%).
Refstingar: 2 mínútur.

Tapið skiptir þó engu máli hvað framhaldið varðar, fyrir utan það að gefa SR-ingum aukið sjálfstraust fyrir úrslitaeinvígið sem fram undan er í næsta mánuði. SA hafði þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn og oddaleiksréttinn í einvíginu. Leikurinn var sá fyrsti í Ofurhelgi ÍHÍ þar sem kvennaliðin þrjú mætast öll sömu helgina. SA mætir Fjölni í Egilshöllinni í dag kl. 16:45, en Reykjavíkurfélögin mætast svo á sunnudag.

Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Erna Bjarnadóttir skrifar
19. febrúar 2026 | kl. 21:00

Íþróttahús á félagssvæði Þórs

Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og Hulda Elma Eysteinsdóttir skrifa
19. febrúar 2026 | kl. 18:00

Nýja blokkahverfið á tjaldsvæðisreitnum – Afleitt skipulag

Jón Hjaltason skrifar
19. febrúar 2026 | kl. 11:30

Skert þjónusta sem kostar meira. Íslenska leiðin...

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar
18. febrúar 2026 | kl. 16:30

Fimm prósent af alþingismanni

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
16. febrúar 2026 | kl. 20:00

Meirihlutinn skilaði auðu í stefnumörkun atvinnumála

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
16. febrúar 2026 | kl. 12:50