Fara í efni
Umræðan

Þórsarar töpuðu og fara ekki í úrslitaleikinn

Má ég eiga hana? Theodór Ingi Óskarsson Fylkismaður og Þórsarinn Ingimar Arnar Kristjánsson eigast við í gærkvöldi. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þórsarar töpuðu 2:0 í gærkvöld fyrir Fylkismönnum í undanúrslitum Lengjubikarkeppninnar í knattspyrnu. Það verður því Fylkir sem mætir KR í úrslitaleik mótsins á laugardaginn en leikmenn Þórs snúa sér að næsta verkefni. Kalt var í veðri þegar liðin mættust á Greifavelli KA.

Þórsliðið lék löngum ágætlega úti á vellinum en náði aldrei að reka smiðshöggið á verkið; að koma boltanum í mark, þrátt fyrir álitlegar sóknir. Fylkismenn, sem leika í næstu deild Íslandsmótsins, fengu líka góð færi og fóru sigri hrósandi heim eftir að hafa nýtt tvö þeirra.

Þórsarar hafa raðað inn mörkum undanfarið en þeim voru mislagðar hendur að þessu sinni og vert að geta þess að Atli Sigurjónsson, sem gerði fimm mörk í síðasta leik gegn ungu liði Vals, var ekki með vegna smávægilegra meiðsla. 

Guðmundur Tyrfingsson gerði fyrra markið strax á 13. mín. eftir snögga sókn. Daninn Greko taldi brotið á sér nálægt miðlínu, ekkert var dæmt  – þar virtist Sigurður dómari Þrastarson hafa rétt fyrir sér – og boltinn var sendur fram á Guðmund. Hann „klobbaði“ varnarmanninn Affi og skoraði með glæsilegu skoti rétt utan vítateigs.

Seinna mark Fylkis gerði Benedikt Daríus Garðarssonar þegar 15 mín. voru eftir. Þórsarar sóttu stíft í von um að jafna en eftir ónákvæma sendingu Affi var boltinn sendur rakleiðis fram völlinn, Benedikt sem var á eigin vallarhelmingu tók á rás, hafði betur í kappahlaupi við Affi og Ásbjörn Líndal og skoraði utarlega úr vítateignum.

Þórsarar léku ágætlega úti á velli sem fyrr segir og sköpuðu nokkrum sinnum hættu við Fylkismerkið en vörnin var hins vegar óvenju illa fyrir kölluð. 

Leikurinn var í beinni útsendingu hjá Livey. Hér er hægt að sjá mörkin, í frétt fótbolta.net.

Leikskýrslan

 

 

asdf

Fyrir hvað á Akureyri að standa?

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
14. mars 2026 | kl. 18:00

Gamla, góða Akureyri

Þorleifur Ananíasson skrifar
13. mars 2026 | kl. 10:00

Opið bréf til íslenskra fjölmiðla - Hver eru markmið ykkar?

Daníel Andri Eggertsson skrifar
12. mars 2026 | kl. 13:30

„Flest mulig – lengst mulig“ á Akureyri

Þóroddur Ingvarsson skrifar
12. mars 2026 | kl. 07:00

Lífsgæðakjarni við Rangárvelli

Þórhallur Jónsson skrifar
11. mars 2026 | kl. 16:45

Hljómburður í Matthíasarkirkju

Gísli Sigurgeirsson skrifar
10. mars 2026 | kl. 18:00