Þór og Fylkir mætast í undanúrslitum í dag
Nú líður að lokum A-deildar Lengjubikarkeppni karla í knattspyrnu. Öðrum undanúrslitaleiknum er lokið þar sem KR sigraði Stjörnuna, en hinn undanúrslitaleikurinn er á dagskrá á KA-svæðinu, Greifavellinum, í dag.
Þór vann riðil 2, hlaut tíu stig í fjórum leikjum, en liðið lék þó raunar fimm leiki því eftir fyrstu tvo leikina dró Völsungur lið sitt úr keppni. Þór gerði jafntefli við ÍA í fyrsta leik, en vann síðan Gróttu, Aftureldingu og Val og má segja að á ýmsu hafi gengið, en eins og fram hefur komið í fréttum mætti Valur ekki með sitt sterkasta lið norður í lokaleik riðilsins sem skar úr um það hvort félagið færi áfram í undanúrslit.
Lokin á riðli 4, þar sem Fylkir telst hafa orðið í efsta sætinu, voru skondin og bera nokkurt vitni um þá tilvistarkreppu sem Lengjubikarinn virðist kominn í þegar það gerist ítrekað undanfarin ár að lið hafa bókað sig í æfingaferðir til annarra landa og afsala sér réttinum til að fara áfram í undanúrslit.
Þegar þetta er skrifað hefur Fylkir lokið leikjum sínum í riðli 4 með 12 stig. Í öðru sæti er Þróttur með níu stig, en á tveimur leikjum ólokið. Frestanir á leikjum ÍBV settu strik í reikning þessa riðils. Þróttur á eftir að mæta ÍBV og gæti því náð Fylki að stigum og farið upp í efsta sætið með góðri markatölu.
- Lengjubikar karla í knattspyrnu
A-deild, undanúrslit
Greifavöllurinn kl. 18
Þór - Fylkir - Útsending: Livey.events
Áskriftarrás eða stakir leikir
Uppfært: Varpað hefur verið hlutkesti um heimaleik í úrslitum og er niðurstaðan að það lið sem vinnur leik kvöldsins, Þór eða Fylkir, fær heimaleik. Leikdagur er laugardagurinn 21. mars og er leikurinn settur á kl. 14, samkvæmt vef KSÍ.
Gamla, góða Akureyri
Opið bréf til íslenskra fjölmiðla - Hver eru markmið ykkar?
„Flest mulig – lengst mulig“ á Akureyri
Lífsgæðakjarni við Rangárvelli