Fara í efni
Umræðan

Þórsarar töpuðu eftir skotsýningu Hauka

Þrír stigahæstu menn Þórs í leiknum í gær sjást hér í mynd í leik gegn Breiðabliki fyrr í haust. Pétur Cariglia með 20 stig, Jalen Green með 20 stig og Justin Andrew með 21 stig. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Þórsarar töpuðu með 26 stiga mun fyrir Haukum í fimmtu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik í gær. Slakur fyrri hálfleikur gerði Þórsurum erfitt fyrir, en þeir náðu þó að saxa nokkuð á forskot Hauka í seinni hálfleiknum. Haukar voru óstöðvandi í fyrri hálfleiknum, skoruðu 71 stig, þar af 39 úr þriggja stiga skotum.

Haukar byrjuðu leikinn af ákafa, skoruðu níu fyrstu stigin og héldu forystunni allt til leiksloka. Þeir pressuðu Þórsara ákaft frá byrjun og nánast allan leikinn og neyddu þá í erfiðar sendingar og mistök. Ofan á það kom svo slakur varnarleikur Þórs í fyrri hálfleiknum á meðan Haukar hittu afbragðs vel. Haukar skoruðu 71 stig í fyrri hálfleiknum og leiddu með 28 stigum að honum loknum. Sannkölluð skotsýning og til að mynda var nýting þeirra í þriggja stiga skotum 46% í fyrri hálfleiknum.

Lokasekúndur fyrri hálfleiksins voru kannski lýsandi fyrir gang leiksins þar sem Anthony Charles Bryant Jr. skoraði úr þremur vítaskotum þegar 1,1 sekúnda var eftir á klukkunni. Þessi rúma sekúnda dugði Haukum síðan að auki til að komast inn í upphafssendingu Þórsara og klína þriggja stiga flautukörfu í andlitið á þeim.

Þórsarar komu mun einbeittari inn í seinni hálfleikinn og byrjuðu að saxa á forskot gestanna. Þeir náðu forskotinu niður í 16 stig um miðjan þriðja leikhluta og 14 stig í fjórða leikhlutanum, en Haukar hleyptu þeim ekki nær en það og juku svo forskotið aftur upp í 26 stig áður en yfir lauk. Sigur Hauka var aldrei í raunverulegri hættu þó gott áhlaup hefði mögulega getað hleypt spennu í leikinn. Þegar upp var staðið höfðu Þórsarar unnið seinni hálfleikinn með tveggja stiga mun, en sigur Hauka öruggur og verðskuldaður. 

Justin Andrew, Jalen Green og Pétur Cariglia skoruðu mest Þórsara, en Matt Treacy skoraði 23 stig fyrir gestina.

Þór - Haukar (15-33) (28-38) 43-71 (30-22) (27-33) 100-126

Haukar eru enn ósigraðir eftir fimm umferðir, en Þór er í 9. sæti með einn sigur.

Helstu tölur úr leiknum, stig/fráköst/stoðsendingar:

Þór

Justin Andrew 21/3/4, Jalen Green 20/8/6, Pétur Cariglia 20/5/1, Baldur Örn Jóhannesson 10/5/5, Hlynur Ingi Finnsson 10/5/2, Axel Arnarsson 8/7/5, Smári Jónsson 5/0/1, Andri Már Jóhannessonn 4/0/0, Bergvin Ingi Magnússon 2/0/3, Páll Nóel Hjálmarsson 0/2/0.

Haukar

Matt Treacy 23/3/3, Dominykas Milka 17/8/6, Anthony Charles Bryant Jr. 19/5/6, Frosti Valgarðsson 16/3/4, Kristófer Kári Arnarsson 11/3/1, Kristófer Breki Björgvinsson 10/7/5, Yngvi Freyr Óskarsson 8/3/3, Alex Rafn Guðlaugsson 8/1/3, Hilmir Hallgrímsson 7/2/1, Gerardas Slapikas 5/3/1, Eggert Aron Levy 2/0/0, Alexander Rafn Stefánsson 0/1/0. 

Leikskýrsla og tölfræði

Staðan í 1. deild karla

Næst:

  • Sunnudagur 8. nóvember kl. 16:00
    1. deild karla, 6. umferð
    Þór - KFG

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15

Hvað gerist í síðari hálfleik? 

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
19. október 2026 | kl. 16:30

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00