Leikir vikunnar dreifast jafnt á sex daga, einn leikur á dag. Fótboltinn kominn í frí og eingöngu handbolti og körfubolti á dagskrá Akureyrarliðanna í þessari viku.
- Handbolti: Bæði Akureyrarliðin í Olísdeild karla unnu í síðustu umferð, KA gegn Aftureldingu og Þór gegn Stjörnunni. Það verður nóg um að vera fyrir handboltaáhugafólk næstu daga því Akureyrarliðin eiga útileik í miðri viku og svo heimaleik um komandi helgi.
- Þórsarar hefja vikuna með heimsókn í Mosfellsbæin á morgun, þriðjudag. Þórsarar eru í 7. sætinu með sex stig að loknum sjö umferðum. Afturelding er tveimur sætum ofar með níu stig. Á sunnudag tekur Þór svo á móti FH.
- KA á útileik á miðvikudag, sækir þá FH heim í Kaplakrikann. FH er í 2. sæti deildarinnar með 11 stig, einu stigi meira en KA sem situr í þriðja sætinu. Strax á laugardag tekur KA svo á móti hinu Hafnarfjarðarliðinu, Haukum, sem eru í efsta sæti deildarinnar með fullt hús. Það er því óhætt að orða það þannig að fram undan séu verðug verkefni hjá KA-liðinu.
- Handbolti: Handboltakonurnar í KA/Þór eiga einnig leik í vikunni, en þær náðu í sín fyrstu stig með sigri á Stjörnunni í síðustu umferð. Með sigrinum fóru þær upp í 8. sætið, en þrjú lið eru jöfn í þremur neðstu sætunum með tvö stig, KA/Þór, HK og Stjarnan. KA/Þór sækir einmitt HK heim í næstu umferð á föstudag. Mikilvæg stig í boði í baráttu neðstu liðanna.
- Körfubolti: Karlalið Þórs í körfuboltanum náði einnig í sinn fyrsta sigur um liðna helgi. Þórsarar höfðu tapað fyrstu þremur leikjum sínum í deildinni, ásamt bikarleik, en unnu Fjölni í jöfnum spennuleik síðastliðinn föstudag. Þór og Fjölnir eru jöfn í 9. og 10. sætinu, bæði með einn sigur í fyrstu fjórum umferðunum. Næsti leikur er heimaleikur gegn Haukum, en Hafnarfjarðarliðið er í 2. sæti deildarinnar með fullt hús, fjóra sigra eins og ÍA sem er á toppnum.
ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER - handbolti
- Handbolti
Olísdeild karla, 8. umferð
Varmá í Mosfellsbæ kl. 18:30
Afturelding - Þór
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER - handbolti
- Handbolti
Olísdeild karla, 8. umferð
Kaplakriki í Hafnarfirði kl. 18.30
FH - KA
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER - körfubolti
- Körfubolti
1. deild karla, 5. umferð
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:15
Þór - Haukar
FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER - handbolti
- Handbolti
Olísdeild kvenna, 7. umferð
Kórinn í Kópavogi kl. 19
HK - KA/Þór
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER - handbolti
- Handbolti
Olísdeild karla, 9. umferð
KA-heimilið kl. 18:30
KA - Haukar
SUNNUDAGUR 1. nóvember - handbolti
- Handbolti
Olísdeild karla, 9. umferð
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 15
Þór - FH
Stöður í deildum og leikjadagskrár
Blak
Handbolti
Íshokkí
Körfubolti
Lesendur eru hvattir til að minna á íþróttaviðburði hvers kyns sem fram undan eru í meistaraflokkum, sérstaklega ef eitthvað verður út undan og gleymist í þessari vikulegu yfirferð í vikubyrjun hér á akureyri.net – sendið tölvupóst í haraldur@akureyri.net ef koma þarf slíkum upplýsingum á framfæri.