Fara í efni
Umræðan

Þórsarar sækja Blika heim í Kópavoginn

Leikmenn Þórs fagna marki í 1-0 sigri liðsins á Fram í 3. umferð Bestu deildarinnar. Mynd: Ármann Hinrik.

Fjórða umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu er hafin. KA lék á heimavelli í gær, en í dag á Þór á útileik, þann þriðja í fyrstu fjórum umferðum mótsins. Lið Þórs sækir Breiðablik heim í Kópavoginn í dag.

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    Kópavogsvöllur kl. 19:15
    Breiðablik - Þór

Þór er með sex stig úr fyrstu þremur leikjunum og er í 5. sætinu, en Breiðablik er sæti neðar og með stigi minna en Þór. Breiðablik gerði 1-1 jafntefli við Víking í opnunarleik mótsins, vann ÍA 1-0 í 2. umferð og gerði síðan markalaust jafntefli við Keflavík í þeirri þriðju. Þór vann Val á útivelli í fyrsta leik, 2-1, tapaði 2-5 fyrir KR, einnig á útivelli, í 2. umferð, en vann Fram 1-0 í fyrsta leik sínum á nýjum gervigrasvelli á Þórssvæðinu.

Þór og Breiðablik mættust síðast í efstu deild karla í knattspyrnu í lok septembermánaðar 2014. Þórsarar höfðu þá 2-0 sigur á Þórsvellinum. Fyrri leik liðanna það sumarið, sem fram fór á Kópavogsvelli í byrjun júlí, lauk með 3-2 sigri Breiðabliks.

Samgöngur eiga að styðja við vöxt – ekki hamla honum

Arna Rut Gunnarsdóttir og Þórhallur Harðarson skrifa
27. apríl 2026 | kl. 10:50

Treystum kennurum

Stefán Oddur Hrafnsson skrifar
27. apríl 2026 | kl. 10:45

Í skólanum er skemmtilegt að vera – eða hvað?

Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar
27. apríl 2026 | kl. 10:40

Gerum það sem virkar gegn ofbeldi

Elvar Fossdal skrifar
27. apríl 2026 | kl. 10:35

Velferðarmálin á Akureyri – Setjum börnin í forgang

Hólmgeir Karlsson skrifar
27. apríl 2026 | kl. 10:30

Spurt er: Er hægt að gera meira fyrir atvinnulífið?

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
27. apríl 2026 | kl. 06:00