Fara í efni
Umræðan

Sunna Björgvinsdóttir er íshokkíkona ársins

Sunna Björgvinsdóttir er leikmaður Södertälje í Svíþjóð, en verður á lánssamningi hjá úrvalsdeildarliðinu Leksand á næstunni.

Sunna Björgvinsdóttir, sem kemur úr röðum Skautafélags Akureyrar, en hefur leikið í Svíþjóð undanfarin ár og verður á lánssamningi hjá Leksand á næstunni í efstu deild í Svíþjóð, hefur verið valin íshokkíkona ársins af stjórn Íshokkísambands Íslands. Sunna er 24ra ára og hefur verið í landsliði Íslands frá 15 ára aldri.

Í umsögn á vef ÍHÍ vegna valsins segir meðal annars um Sunnu: 

Sunna hefur síðustu ár leikið í Svíþjóð en er alin upp hjá Skautafélagi Akureyrar. Undir þeirra merkjum lék Sunna um árabil þar til hún flutti til Svíþjóðar og hefur leikið þar undanfarin misseri með Sodertelje SK með framúrskarandi árangri. Sunna verður á lánssamningi frá Sodertelje SK til Leksand á komandi vikum leikandi í efstu deild í Svíþjóð.

Sunna var fyrst valin í landslið Íslands 2015 og hefur verið lykilleikmaður í liðinu síðan eða um níu ára skeið. Liðið hefur verið á góðri siglingu þessi ár og er í 28. sæti á heimslista Alþjóða íshokkísambandsins. Með liði sínu Sodertelje SK lék Sunna 22 leiki á síðasta tímabili og skoraði í þeim 12 mörk og átti 21 stoðsendingu. Glæsilegur árangur!

Sunna er einstaklega jákvæð, góður liðsfélagi og er fyrirmynd margra yngri iðkenda. Sunna hefur sýnt það að hún er liði sínu og landsliði ávallt til sóma hvort sem það er í leik eða utan hans.

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00