Fara í efni
Umræðan

Stöðvum áætlanir um sjókvíaeldi í Eyjafirði!

Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi, SUNN, biðla til stjórnvalda um að gera Eyjafjörð að friðunarsvæði fyrir sjókvíaeldi.

Það eru blikur á lofti. Í farvatninu eru áform Kleifa ehf. á Ólafsfirði um stórfellt laxeldi í Eyjafirði og á Tröllaskaga. Á ráðstefnu Hringborðs hafs og eldis og Arion banka í byrjun júní á þessu ári lét atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, í veðri vaka að Hafrannsóknarstofnun skyldi hefja vinnu við burðarþolsmat fyrir fiskeldi í sjókvíum í Eyjafirði.

Fyrir 5 árum var í burðarliðnum ámóta verkefni, 20.000 tonna framleiðsla á laxi í sjókvíum í Eyjafirði. Á þeim tíma samþykkti bæjarstjórn Akureyrar að leggja til við þáverandi ráðherra atvinnuvega og nýsköpunar, Kristján Þór Júlíusson, að Eyjafjörður yrði friðaður fyrir fiskeldi í sjókvíum. Fleiri sveitarfélög við fjörðinn tóku í sama streng, afstaðan var nokkuð afdráttarlaus.

Í kjölfarið óskaði ráðherra eftir umsögn Hafrannsóknarstofnunar um hvort stofnunin teldi að takmarka skyldi eða banna fiskeldi eða ákveðnar eldisaðferðir í Eyjafirði. Skemmst er frá því að segja að í svari stofnunarinnar við erindi ráðuneytis stendur m.a.; „Hafrannsóknarstofnun telur tifefni til þess að banna fiskeldi í sjókvíum í Eyjafirði. Ástæður þess eru staða villtra stofna laxfiska, þá sérstaklega bleikju og hugsanleg neikvæð áhrif á lífríki fjarðarins.“ Við hljótum að geta gengið út frá því að þessi afdráttarlausa niðurstaða Hafrannsóknarstofnunar standi nú fimm árum síðar.

Í nýlegu lögfræðiáliti um stöðu sveitarfélaga m.t.t. burðarþolsmats vegna fiskeldis segir að löggjafinn hafi ekki tryggt sveitarfélögum næga aðkomu að framkvæmd laga um fiskeldi. Frumskylda sveitarfélaga er að gæta hagsmuna íbúa sinna og starfræksla sjókvíaeldis af þeirri stærðargráðu sem um ræðir hefur mikil áhrif á hagsmuni íbúa alls staðar í Eyjafirði, í dag og um ókomna tíð. Lífríki fjarðarins er í húfi. Ásýnd hans og orðstír einnig.

Virkasta úrræði sveitarfélaga er að hafa áhrif á umræðuna áður en ráðherra tekur ákvörðun um burðarþolsmat. Tíminn er núna. Þótt ráðherra sé ekki skylt að leita álits sveitarfélaga lögum samkvæmt skulum við treysta því að hann gangi málefnalega til borðs og leiti eftir og taki tillit til þess sem hlutaðeigandi sveitarfélög og íbúar þeirra hafa um málið að segja.

Til þess að fiskeldi eigi sér blómlega framtíð þarf að vanda það hvernig áframhaldandi uppbygging skuli eiga sér stað. Það er hægt að skapa sátt milli öflugrar matvælaframleiðslu og verndunar á dýrmætum vistkerfum. Sú sátt næst með nútímalegum lausnum, en ekki með tugþúsunda tonna framleiðslu í opnum sjókvíum í Eyjafirði.

Lærdómurinn af átökunum á Seyðisfirði þarf að vera okkur víti til varnaðar. Þar hafa íbúar mátt horfa upp á að áform um sjókvíaeldi eru keyrð áfram þvert á yfirlýstan vilja mikils meirihluta íbúa. Kerfið virðist hafa tekið völdin; hver stofnunin bendir á aðra og ábyrgðin týnist á milli stjórnsýslustiga á meðan vilji heimamanna er virtur að vettugi. Slíka atburðarás verðum við að stöðva í fæðingu hér í Eyjafirði.

Tökum höndum saman, stöndum vörð um fjörðinn okkar.

Harpa Barkardóttir situr í stjórn SUNN

ESB‑umræðan: Ótti, staðreyndir og upplýst ákvörðun

Halla María Sveinbjörnsdóttir skrifar
23. mars 2026 | kl. 06:00

Jaðarsetning eldri borgara?

Benedikt Sigurðarson skrifar
20. mars 2026 | kl. 19:00

Spörum okkur ekki til óbóta

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Sverre Jakobsson skrifa
19. mars 2026 | kl. 21:30

Mannhvelið: þar sem drengir verða karlmenn

Skúli Bragi Geirdal skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:30

Hvað gerðist með „sérlausn“ Írlands?

Erna Bjarnadóttir skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:30

Vantar ríki sem geta borgað

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:00