Fara í efni
Umræðan

Blak: Sterkur sigur KA í fyrsta leik

Ágúst Leó Sigurfinnsson smassar gegn Þrótturum í kvöld. Bláklæddi KA-maðurinn sem fylgist grannt með er Mateusz Jeleniewski sem lék gríðarlega vel sem. Mynd: Skapti Hallgrímsson

KA vann góðan sigur á Þrótti úr Reykjavík í KA-heimilinu í kvöld í fyrsta úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í blaki karla. Úrslitin urðu 3:0 KA í vil en leikurinn var þrátt fyrir það talsvert jafnari en lokastaðan gefur til kynna.

Þróttarar höfnuðu í 4. sæti deildarinnar og slógu deildarmeistara Hamars óvænt út í undanúrslitunum á meðan KA lagði Aftureldingu. KA er því með heimaleikjaréttinn og nýtti fyrsta heimaleikinn til fulls í kvöld. Fyrstu hrinu vann KA mjög örugglega, 25:17 og höfðu forystuna framan af annarri hrinu. En þá vöknuðu Þróttarar og voru komnir yfir um miðja hrinu. KA náði hins vegar að snúa taflinu sér í vil í blálokin og tryggja sér 25:23 sigur.

Þróttarar voru sömuleiðis með yfirhöndina lengst af þriðju hrinu en í stöðunni 19:18 þeim í vil náði KA fjórum stigum í röð og landaði síðan sigri í lotunni, 25:22. Lokatölur því 3:0 en Þróttarar voru reyndar óheppnir að vinna enga hrinu í kvöld. Munaði þar líklega mest um stórleik Mateusz Jeleniewski frelsingja KA í vörninni og móttöku.

Annar leikurinn í viðureign liðanna verður í Reykjavík á sunnudaginn en vinna þarf þrjá leiki til að hampa Íslandsmeistaratitlinum.

Heilabilun og samþætting þjónustu

Anna Sigga Jökuls Ragnheiðardóttir skrifar
12. maí 2026 | kl. 06:00

Við viljum greitt aðgengi að íþróttum og menningu á Akureyri

Linda Egilsdóttir og Elmar Logi Heiðarsson skrifa
11. maí 2026 | kl. 18:00

Sameinum kraftana – byggjum sterkara sveitarfélag

Hjálmar Pálsson skrifar
11. maí 2026 | kl. 10:30

„Hvenær hættiði að tala um þessa sundlaug?“

Stefán Oddur Hrafnsson og Dýrleif Skjóldal skrifa
11. maí 2026 | kl. 06:00

Stefnum hátt

Ragnar Sverrisson skrifar
11. maí 2026 | kl. 06:00

Sumarið sem kom á óvart

Kristín Helga Schiöth skrifar
10. maí 2026 | kl. 17:30