Fara í efni
Umræðan

Blak: KA tapaði fyrsta leiknum gegn HK

Mynd: Skapti Hallgrímsson

KA mætti HK í Kópavogi í kvöld í fyrsta úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna. Leikurinn var hnífjafn og hörkuspennandi en svo fór að HK fór með 3:1 sigur af hólmi.

Allar hrinurnar voru jafnar og spennandi og hefðu getað farið á hvorn veginn sem var. KA vann fyrstu hrinuna 25:23 með góðum endaspretti og HK mátti hrósa happi að ná að knýja fram sigur eftir nokkrar upphækkanir í næstu hrinu, 29:27.

Þriðja hrina var einnig hnífjöfn og KA yfirleitt aðeins á undan að skora. En í stöðunni 22:20 fyrir KA kom góður kafli hjá HK og þær kláruðu hrinuna 25:23. Fjórða hrinan var líka í járnum, liðin skiptust á um forystuna en aldrei munaði miklu. En rétt eins og í hrinunni á undan voru Kópavogsstúlkur sterkari á endasprettinum og tryggðu sér 26:24 sigur í hrinunni með því að skora þrjú síðustu stigin.

Sannarlega svekkjandi tap hjá KA-stelpunum, því hrinurnar hefðu alveg eins getað dottið þeirra megin. Næsti leikur í einvíginu verður í KA-heimilinu næstkomandi laugardag. Vinna þarf þrjá leiki til að hampa Íslandsmeistaratitlinum og KA sem ríkjandi meistari hefur sannarlega ekki sagt sitt síðasta orð í rimmunni.

„Hvenær hættiði að tala um þessa sundlaug?“

Stefán Oddur Hrafnsson og Dýrleif Skjóldal skrifa
11. maí 2026 | kl. 06:00

Stefnum hátt

Ragnar Sverrisson skrifar
11. maí 2026 | kl. 06:00

Sumarið sem kom á óvart

Kristín Helga Schiöth skrifar
10. maí 2026 | kl. 17:30

Mannréttindi á okkar dögum

Sigrún Steinarsdóttir skrifar
10. maí 2026 | kl. 11:00

Við ætlum að vinna keppnina um unga fólkið

Óðinn Svan Óðinsson skrifar
10. maí 2026 | kl. 06:00

Hvert stefnir menningin?

Elsa María Guðmundsdóttir skrifar
09. maí 2026 | kl. 10:30