Fara í efni
Umræðan

Sögulegt mark en Þór tapaði – MYNDIR

Myndir: Ármann Hinrik

Þórsarar féllu á prófinu í gærkvöld þegar þeir fengu Völsunga frá Húsavík í heimsókn í Lengjudeildinni, næst efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Þórsliðið byrjaði ágætlega og náði forystu snemma leiks en síðan hallaði býsna hratt undan fæti og gestirnir unnu sanngjarnan sigur – 3:1. Gestirnir voru baráttuglaðari, grimmari og kraftmeiri, sem er sjaldgæft þegar lið Þórs á í hlut á heimavelli.

Leikmannahópur Þórs er mjög spennandi og mikils vænst af liðinu í sumar. Þónokkrir eru frá vegna meiðsla eins og er, en liðið á þó að geta miklu betur en í gær. Það er gömul saga og ný að ekkert gerist af sjálfu sér, góð frammistaða í leik skiptir ekki máli þegar stigið er inn á völlinn næst. Hugsanlega brenndu Þórsarar sig á því í kvöld.

Gestirnir voru baráttuglaðari, börðust eins og ljón allan tímann og létu finna vel fyrir sér. Engum getur hafa komið á óvart að nýliðarnir mættu þannig til leiks á móti nágrönnum sínum á Akureyri enda tóku Þórsarar tóku vel á móti þeim framan en síðan var eins og mótlætið drægi úr þeim mesta móðinn.

Þess verður að geta að Völsungar léku ljómandi vel langtímum saman og greinilega er mun meira spunnið í lið þeirra en margir gerðu ráð fyrir, miðað við spár. Vel var að verki staðið í mörkunum sem Völsungar gerðu, frá þeirra sjónarhóli, en varnarleikur Þórs var hins vegar slakur í öll þrjú skiptin.

_ _ _

FYRSTA MARK HERMANNS
Það var Hermann Helgi Rúnarsson sem braut ísinn á 17. mínútu. Kom Þór þá í 1:0, ef til vill ólíklegasti maður vallarins til þess! Þetta var 92. leikur Hermanns á Íslandsmótinu og fyrsta markið sem hann skorar. Samkvæmt vef KSÍ á Hermann að baki alls 134 leiki í Íslandsmóti, bikarkeppni og deildarbikar. Ibrahima Balde fékk boltann á miðjum vallarhelming Völsungs, snéri á varnarmenn og sendi á Hermann sem lék inn í vítateiginn hægra megin og skoraði framhjá Ívari. Þórsarar fögnuðu að vonum vel og þögguðu um stund niður í fjölmennum og háværum stuðningsmannahópi Völsungs. 


_ _ _

DAUÐAFÆRI
Fljótlega eftir mark Hermanns fékk Sverrir Páll Ingason dauðafæri eftir undirbúning Balde og Arons Inga Magnússonar en Ívar Arnbro Þórhallsson, lánsmaður frá KA, varði mjög vel. Ívar lék mjög vel gegn Þórsurum. Fyrr í leiknum hafði Völsungur einnig fengið dauðafæri; eftir hornspyrnu á 12. mín. var Elfar Árni Aðalsteinsson skyndilega einn með boltann á markteignum en Aron Birkir varði frábærlega.


_ _ _

VÖLSUNGUR JAFNAR
Þórsarar þögguðu niður í fjörugum stuðningsmannahópi Völsungs með marki Hermanns, sem fyrr segir. Hópurinn sá arna hresstist þó fljótt, studdi sína menn af miklum móð og komið var að Húsvíkingum að fagna þegar rúmur hálftími var liðinn. Rafnar Máni Gunnarsson skoraði þá og markið kom ekki á óvart því gestirnir höfðu verið betri. Rafnar var óvaldaður þegar hann fékk sendingu frá Xabier Anorga og lét vaða nærri hægra markteigshorninu; þrumaði boltanum í fjærhornið.


_ _ _

ORRI MEIDDUR AF VELLI
Orri Sigurjónsson, sem var frábær í miðri vörn Þórs í síðustu tveimur leikjum, lék á miðjunni að þessu sinni. Hann byrjaði mjög vel en varð fyrir hnjaski þegar um að bil korter var liðið; haltraði en hélt áfram og var svo skipt út af á 37. mínútu, fljótlega eftir að Völsungur jafnaði. Leikur Þórs riðlaðist eftir að Orri meiddist og varð ekki samur.

  • Völsungur komst í 2:1 á síðustu mínútu fyrri hálfleiks. Aftur var vörn Þórs illa á verði; eftir fyrirgjöf frá hægri var Arnar Pálmi Kristjánsson lang ákveðnastur í vítateignum og hamraði boltann í þverslá og inn.

_ _ _

10 ÁMINNINGAR
Reikna mátti með miklum baráttuleik þessara nágrannaliða og byrjunin sveik engan! Fyrsti Völsungurinn fékk áminningu á annarri mínútu, fyrsti Þórsarinn tveimur mínútum síðar og hraustleg barátta hélt áfram um stund. Það var Gunnar Kjartan Torfason sem fékk fyrstur að líta gula spjaldið og síðan Yann Emmanuel Affi. Sveinn Arnarsson dómari sýndi fjórum Þórsurum gula spjaldið og sex Völsungum. Og leikmenn virtust aldrei innilega sammála dómaranum, eins og gengur ...


_ _ _

SIGURINN Í HÖFN
Jakob Héðinn Róbertsson gerði endanlega út um leikinn með þriðja marki Völsungs eftir klukkutíma leik. Hann komst inn í vítateiginn vinstra megin, fór undarlega auðveldlega framhjá Yann Emmanuel Affi og renndi boltanum undir Aron Birki.


_ _ _

HÚSVÍSK GLEÐI
Leikmenn og stuðningsmenn Völsungs fögnuðu gríðarlega þegar flautað var til leiksloka eins og nærri má geta en Þórsarar gengu hnípnir af velli.

  • Eftir leiki kvöldsins er ÍR í efsta sæti Lengjudeildarinnar með 14 stig að loknum sex leikjum, Njarðvík er með 12 stig, HK 11 og bæði Þór og Þróttur 10.

Skipulagsbreytingar og grundvallaratriði

Árni Guðmundsson skrifar
06. júní 2025 | kl. 21:45

Héraðs­vötn og Kjalöldu­veitu í nýtingar­flokk

Jens Garðar Helgason og Ólafur Adolfsson skrifa
06. júní 2025 | kl. 21:30

Forvarna og frístundadeild Akureyrar lögð niður

Starfsfólk FÉLAK - Félagsmiðstöðva Akureyrar skrifar
05. júní 2025 | kl. 19:00

Að lenda í hakkavélinni

Gréta Bergrún Jóhannesdóttir skrifar
03. júní 2025 | kl. 11:30

Schengen er sannarlega vandamálið

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
03. júní 2025 | kl. 11:00

Stóraukið fjármagn í viðhald vega á landsbyggðinni

Eyjólfur Ármannsson skrifar
02. júní 2025 | kl. 15:00