Forvarna og frístundadeild Akureyrar lögð niður

Við sem höfum starfað undir merkjum FÉLAK viljum koma á framfæri djúpum áhyggjum okkar vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga sem fela í sér að starfsemi félagsmiðstöðva verði alfarið færð undir stjórn grunnskóla bæjarins. Í kjölfarið verður Ungmennahúsið og Virkið (Þjónustu- og ráðgjafasetur) flutt í tvær aðskildar einingar með ólíkum áherslum. Þessar breytingar munu skerða þá samþættingu og samfellu sem hefur verið grundvöllur starfsins og stuðlað að traustri þjónustu við ungt fólk frá miðstigi til þrítugs. Öllu starfsfólki var sagt upp störfum og hluta hópsins boðið önnur störf innan Akureyrarbæjar.
Hingað til hefur það verið deildinni afar dýrmætt að starfa sjálfstætt á forsendum frítímans og þarfa barna og ungs fólks óháð stöðu þeirra í skólum eða annarsstaðar í kerfum bæjarins. Þá hefur starfið verið leitt af fagfólki í frítímafræðum og grundvöllur síðustu fimmtán ár verið samþætting við önnur kerfi með reglubundnu samráði. Þessi nálgun hefur skapað möguleika til sveigjanlegrar þjónustu sem er til dæmis nauðsynlegar fyrir viðkvæma hópa. Sérstaklega hefur verið mikill styrkur í því að vinna þvert á skóla og aldurshópa þar sem félagsmiðstöðvar fyrir ungmenni í 5.–10. bekk, Ungmennahúsið fyrir 16–25 ára og Virkið fyrir 16–30 ára hafa skapað faglegt net sem styður við snemmtæka íhlutun, valdeflingu og lýðræðislega þátttöku ungmenna óháð skóla samhengi. Þá hafa forvarnar- og félagsmálaráðgjafar sem telja sjö verið tengiliðar við skóla bæjarins, þetta teymi vinnur þvert á skóla og sjá meðal annars um fræðsluáætlun og koma að ýmsum verkefnum með ungu fólki allt árið um kring.
Fjármögnun starfsemi FÉLAK hefur verið ófullnægjandi síðustu ár og ítrekað óskað eftir frekari stuðningi til að mæta þörfum barna og ungs fólks sem hafa aukist til muna síðustu misseri og hefur verið tíðrætt í fjölmiðlum.
Félagsmiðstöðvar veita ungmennum öruggt rými til tjáningar og stuðla að félagsfærni, sjálfstyrkingu og tengslum við traust fagfólk. Þátttaka í slíku frístundastarfi hefur jákvæð áhrif á sjálfsmynd og vellíðan ungs fólks (Velferðarvaktin, 2011). Því eru áhyggjur uppi um að samþætting við skólakerfið geti skert sjálfstæði, traust og sveigjanleika þjónustunnar sem getur dregið úr raunverulegri þátttöku.
Fræðilegar rannsóknir undirstrika mikilvægi þess að félags- og frístundastarf sé aðskilið frá skólastarfi. Hart (1992) bendir á að virðing fyrir rödd barna og þátttöku þeirra sé grunnur lýðræðislegra samfélaga og Arnstein (1969) ásamt Percy-Smith og Thomas (2010) leggja áherslu á að áhrifarík þátttaka krefjist sjálfstæðs rýmis utan stofnanavalds.
Aukið sjálfstæði og traust tengslanet utan skóla eru brýn fyrir líðan barna og ungs fólks sér í lagi í ljósi vaxandi tilkynninga um ofbeldi og vanlíðan hjá þessum hópum. Á alþjóðavettvangi eru fjölþættar og þverfaglegar lausnir svo sem Youth Work (UNICEF, 2023) og multi-agency support (Walker, 2018) taldar lykilþættir til árangurs. Slíkar nálganir gera ráð fyrir að ungmenni hafi aðgang að þjónustu á sínum eigin forsendum, óháð skólastofnunum.
Þá hefur framkvæmd breytinganna verið með þeim hætti að mörg okkar hafa misst starf án aðkomu að ákvörðuninni eða faglegs samtals um framtíð þjónustunnar. Skortur á samráði og faglegri umræðu um áhrifin hefur dregið úr áhrifum fagfólks og getu þess til að standa vörð um hagsmuni ungs fólks. Nýtt skipulag gerir ráð fyrir að starfsfólk vinni á skólatíma að fjölmörgum verkefnum sem snúa að samskiptum barna í bekkjum og frímínútum svo dæmi séu tekin. Áhyggjur eru af því að hið eiginlega félagsmiðstöðva og frítímastarf rýrist. Ekki virðist vera sem hafi verið leitað samráðs við fagfólk í æskulýðsfræðum um þessar breytingar svo sem Samfés og Fagfélagið. Sömuleiðis var ekki leitað til Ungmennaráðs Akureyrar við undirbúning breytinganna, þrátt fyrir að samkvæmt viðmiðum Barnvæns sveitarfélags sem Akureyrarbær hefur skuldbundið sig til að fylgja, eigi öll mál sem varða ungmenni að fara fyrir ráðið. Þetta dregur úr lýðræðislegri þátttöku ungs fólks í eigin málefnum og stríðir gegn markmiðum verkefnisins um að efla rödd barna og ungmenna í ákvarðanatöku (Barnvæn sveitarfélög, e.d.). Jafnframt setjum við stórt spurningarmerki við að uppsagnir hafi átt sér stað áður en að skipulagsbreytingar voru formlega teknar fyrir í bæjarráði.
Ný æskulýðslög sem verða lögð fram fyrir Alþingi haustið 2025 leggja áherslu á virka þátttöku barna og ungmenna, lýðræði og sjálfstæði æskulýðsstarfs. Skipulagsbreytingar sem sameina frístundastarf og skólastarf án raunverulegs samráðs við fagfólk og ungt fólk ganga gegn þessum áherslum.
Að lokum viljum við vekja athygli á grein sem birtist á kaffid.is þar sem starfsemi FÉLAK er rædd sem einstök á landsvísu og sýnir mikilvægi og árangur starfseminnar í okkar samfélagi: https://www.kaffid.is/starfsemi-felak-er-einstok-landsvisu/
Við skorum því á bæjaryfirvöld að endurskoða þessar breytingar með opnu samráði við fagfólk og ungt fólk þar sem hagsmunir barna og ungs fólks eru í fyrirrúmi og skýr sýn um mikilvægi lýðræðis, tengsla og faglegs sjálfstæðis er höfð að leiðarljósi.
Með virðingu,
starfsfólk FÉLAK
Arnstein, S. R. (1969). A ladder of citizen participation. Journal of the American Institute of Planners, 35(4), 216–224. https://doi.org/10.1080/01944366908977225
Hart, R. A. (1992). Children's participation: From tokenism to citizenship (Innocenti Essays, No. 4). UNICEF Innocenti Research Centre. https://www.researchgate.net/publication/24139916_Children's_Participation_From_Tokenism_To_Citizenship
Percy-Smith, B., og Thomas, N. (2010). A handbook of children and young people's participation: Perspectives from theory and practice. Routledge.
UNICEF. (2023). Youth work and youth participation: Supporting young people’s rights and voices. UNICEF. https://www.unicef.org/media/115771/file/Youth-Work-Participation.pdf
UNICEF á Íslandi. (e.d.). Árangur barnvænna sveitarfélaga. https://barnvaensveitarfelog.is/barnvaen-sveitarfelog/arangur-barnvaenna-sveitarfelaga/
Velferðarvaktin. (2011). Áfangaskýrsla Velferðarvaktarinnar. Velferðarráðuneytið. https://www.stjornarradid.is/media/velferdarraduneyti-media/media/ritogskyrslur2011/Afangaskyrsla_velferdarvaktar_jun2011.pdf
Walker, G. (2018). Working together for children: Multi-agency working. Bloomsbury Academic.


Schengen er sannarlega vandamálið

Stóraukið fjármagn í viðhald vega á landsbyggðinni

Púslið sem passar ekki

Fyrir hvað borgum við?
