Fara í efni
Umræðan

KA og Stjarnan skildu jöfn í kaflaskiptum leik

Ásgeir Sigurgeirsson sem sækir hér að Stjörnuvörninni í dag gerði mark í leiknum. Mynd: Ármann Hinrik

KA-menn gengu afar vonsviknir af velli í dag eftir 1:1 jafntefli við Stjörnuna á heimavelli í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Það gerðu gestirnir reyndar líka því miðað við fyrri hálfleikinn hefðu þeir átt skilið að vinna en KA-strákarnir voru miklu betri í þeim seinni, fengu tækifæri til að gera meira en eitt mark og hefðu auk þess átt að fá vítaspyrnu sem þeir fengu ekki.

Eftir leikinn, og úrslit annarra leikja, færðist KA niður um eitt sæti; er í níunda sæti með 12 stig, FH og Afturelding eru með 11 og ÍA neðst með níu stig.

Leikurinn var afar kaflaskiptur. Gestirnir höfðu yfirburði í fyrri hálfleik og skoruðu á 35. mínútu, en Alex Þór Haukssyni, Stjörnumanni, var vísað af velli aðeins þremur mín. síðar. KA-menn gerðu Garðbæingum enga skráveifu síðustu 10 mínútur hálfleiksins en þeir tóku hinsvegar völdin í seinni hálfleik. Ásgeir Sigurgeirsson jafnaði þegar lítið var eftir en KA hefði átt að gera fleiri mörk; markvörður Stjörnunnar varði vel, glæsilegt skot Hallgríms Mars fór í tréverkið og svo átti KA að fá víti en dómarinn sá ekki þegar Stjörnumaður fékk boltann í handlegginn innan vítateigs.

Leikskýrslan

Staðan í deildinni

Nánar í fyrramálið

Að lenda í hakkavélinni

Gréta Bergrún Jóhannesdóttir skrifar
03. júní 2025 | kl. 11:30

Schengen er sannarlega vandamálið

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
03. júní 2025 | kl. 11:00

Stóraukið fjármagn í viðhald vega á landsbyggðinni

Eyjólfur Ármannsson skrifar
02. júní 2025 | kl. 15:00

Púslið sem passar ekki

Ingibjörg Isaksen skrifar
02. júní 2025 | kl. 09:00

Fyrir hvað borgum við?

Adolf Ingi Erlingsson skrifar
30. maí 2025 | kl. 16:15

Á uppgjör frá TR að koma eldri borgurum á óvart?

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. maí 2025 | kl. 12:45