Fara í efni
Umræðan

Skora á SÍ að semja við Guðrúnu og Val

Valur Helgi Kristinsson og Guðrún Dóra Clarke heimilislæknar á Akureyri.

Stofnaður hefur verið undirskriftarlisti á Ísland.is þar sem skorað er á Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) að semja um læknisþjónustu við heimilislæknana Guðrúnu Dóru Clarke og Val Helga Kristinsson, þannig að þau geti aftur tekið á móti sjúklingum á Akureyri, sínum gömlu og nýjum.

Guðrún Dóra og Valur Helgi störfuðu lengi á heilsugæslustöð Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Akureyri en réðu sig fyrir nokkrum mánuðum til starfa hjá heilsugæslunni í Urðarhvarfi í Kópavogi en höfðu aðstöðu á Læknastofum Akureyrar.

Sjúkratryggingar Íslands kröfðust þess í febrúar að læknarnir tveir hefðu eingöngu aðsetur á Urðarhvarfi. Starfsemin á Akureyri var því stöðvuð tímabundið.

Hátt í 1000 skjólstæðingar

„Afar áhugavert að sjá þetta, skjólstæðingar þessara frábæru lækna á Akureyri skora á Sjúkratryggingar sjálfar. Þetta hefur líklega ekki gerst áður með þessum hætti hérlendis. Með öllu ótengt okkur og að eigin frumkvæði skjólstæðinganna sjálfra sem í dag telja nálægt 1000 á Akureyri og fer fjölgandi. Það eru nálægt 4.5% íbúa bæjarins,“ segir í færslu á Facebook síðu Heilsuverndar, þar sem vakin er athygli á undirskriftarlistanum.

Þar segir einnig meðal annars um málið:

  • Sú staða sem er uppi er óásættanleg fyrir alla og ekki síst þá sem óska eftir þjónustu.
  • Heilsugæslunni Urðarhvarfi var meinað að opna fyrir móttöku lækna á Akureyri á Læknastofum Akureyrar fyrir þá sem eru skráðir í samlag stöðvarinnar með bréfi frá Sjúkratryggingum í febrúar
  • Það er lögum samkvæmt óheimilt að hafna skráningu skjólstæðinga á heilsugæslustöðvar og er ekki mögulegt að hafna þjónustu né afskrá skjólstæðinga af stöð.
  • Það að hafna því að geta veitt hinum skráðu þjónustu stenst að okkar mati engan veginn og þarf að útkljá með formlegum hætti. Læknafélag Íslands er okkur sammála í þessum efnum.
  • Forsvarsmenn heilsugæslunnar Urðarhvarfi áttu fund með heilbrigðisráðherra vegna málsins 20. mars og sendu í kjölfarið Sjúkratryggingum bréf með ósk um formlegar viðræður. Það bréf hefur verið ítrekað í nokkur skipti, en án þess að svar hafi borist um fund eða viðræður. Við gerum athugasemd við það að erindi okkar sé ekki svarað.
  • Þá hefur Heilsugæslan í Urðarhvarfi óskað formlega eftir því við Sjúkratryggingar að taka til efnislegrar meðferðar heimild stöðvarinnar til þess að hafna skráningu utan þjónustusvæðis hennar sem og að stöðinni sé heimilt að afskrá skjólstæðinga að sama skapi.
  • Hér er um að ræða grundvallar mál um þjónustu og möguleika heilsugæslustöðva til að sinna skráðum skjólstæðingum sínum, eða eftir atvikum hafa áhrif á það hvernig hægt er að sinna þeim. Ljóst er að réttur sjúklinga er mikill að fá að velja sér sinn þjónustuaðila.
  • Niðurstaðan getur einungis orðið annað af tvennu, að Sjúkratryggingar heimili læknunum að sinna sínum formlega skráðu skjólstæðingum og þeim sem eftir þeirra þjónustu falast, eða að heimila Heilsugæslustöðinni að hafna skráningum og afskrá skjólstæðinga sem stöðin getur ekki sinnt nema að takmörkuðu leyti.
  • Við tökum það skýrt fram í okkar umleitunum við Sjúkratryggingar og Heilbrigðisráðuneytið að Heilsugæslan í Urðarhvarfi er að leita leiða til að veita læknisþjónustu.
  • Við gerum okkur fulla grein fyrir því að það muni þurfa að koma til útboðs nýrrar heilsugæslustöðvar eigi að sinna allri þeirri þjónustu sem slík stöð veitir. Við munum taka þátt í slíku útboði komi til þess.
  • Þangað til viljum við geta eftir fremsta megni og án kostnaðarauka fyrir hið opinbera sinna skráðum skjólstæðingum okkar.
Undirskriftarlistinn var stofnaður í fyrradag og gildistíminn er til 31. júlí. Þegar þetta er skrifað, sunnudag 16. júní kl. 16.00, hafa 179 skrifað undir.

Opið bréf til heilbrigðisráðherra

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
08. desember 2025 | kl. 17:30

Stafrænt kynbundið og kynferðislegt ofbeldi: alvarlegt og vaxandi samfélagsmein

Tryggvi Hallgrímsson skrifar
06. desember 2025 | kl. 11:00

Opið bréf til stjórnvalda

Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og aðrir starfsmenn lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri skrifa
03. desember 2025 | kl. 10:00

Fundur á Akureyri um hættulega úrelta stjórnarskrá Íslands

Hjörtur Hjartarson og Katrín Oddsdóttir skrifa
28. nóvember 2025 | kl. 18:00

Jákvæð áhrif millilandaflugs til Akureyrar eru miklu meiri en þú heldur

Lára Halldóra Eiríksdóttir skrifar
27. nóvember 2025 | kl. 10:30

Opið bréf til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
26. nóvember 2025 | kl. 17:30