Fara í efni
Umræðan

Sjöunda tapið í röð og Þór niður í fallsæti

Ágúst Eðvald Hlynsson í þann mund að hleypa af og andartaki síðar söng knötturinn í netinu. Markið dugði reyndar skammt gegn fjórum mörkum ÍBV. Mynd: Ármann Hinrik.

Hvorki gengur né rekur hjá knattspyrnuliði Þórs í efstu deild karla í knattspyrnu en í dag tapaði liðið sínum sjöunda leik í röð og er komið niður í fallsæti. Þórsarar fengu Eyjamenn í heimsókn á Þórsvöllinn (VÍS völlinn – gervigras á Ásnum) og gestirnir komust upp fyrir Þór í deildinni með öruggum 4:1 sigri.

Eyjamenn voru óheppnir að skora ekki strax á fyrstu mínútu leiksins í dag þegar Vicente Valor fékk boltann í teignum og átti skot sem stefndi í markhornið. Boltinn hafnaði hins vegar í samherja og Þórsarar sluppu með skrekkinn. Nokkrum mínútum síðar áttu Þórsarar sitt eina færi í hálfleiknum þegar Ágúst Eðvald Hlynsson fékk boltann í þröngu færi á markteig eftir undirbúning Kristófers Kristjánssonar en Ari i Haraldstovu Petersen, markvörður Eyjamanna, náði að krafsa í boltann áður en Ágústi gafst tími til að koma boltanum í átt að markinu.

Þórsarar fengu hálffæri snemma leiks en markvörður Eyjamanna náði að koma knettinum burt áður en Ágúst Eðvald Hlynsson gat gert sér mat úr færinu. Mynd: Ármann Hinrik.

Rétt á eftir sluppu Þórsarar með skrekkinn þegar Róbert Elís Hlynsson fékk boltann óvænt við miðlínu, var aleinn og sá að Aron Birkir Stefánsson markvörður stóð fullframarlega. Róbert Elís lét vaða rétt við miðjubogann, boltinn sveif yfir Aron Birki en hafnaði í innanverðri stönginni. Eitthvað hlaut undan að láta og á 12. mínútu náðu Eyjamenn forystunni þegar Bjarki Björn Gunnarsson tók vel á móti langri sendingu frá Vicente Valor við vítateiginn og fékk nægan tíma til leggja boltann á vinstri fótinn og skjóta að marki. Ásbjörn Líndal Arnarsson setti út fótinn til varnar og boltinn breytti um stefnu af honum á leið sinni í markið.

Staðan orðin 3:0 eftir 24 mínútur

ÍBV gerði síðan eiginlega út um leikinn með tveimur mörkum um miðjan hálfleikinn. Bjarki Björn skoraði sitt annað mark, nema hvað núna lagði hann knöttinn fyrir hægri fótinn og spyrnti honum laust en hnitmiðað í fjærhornið.

Bjarki Björn Gunnarsson, umkringdur varnarmönnum Þórs, laumaði knettinum laglega í fjærhornið á 21. mínútu og kom Eyjamönnum í 2:0. Mynd: Ármann Hinrik.

Sesar Örn Harðarson bætti þriðja markinu við skömmu síðar, þegar hann tók á móti sendingu inn í teiginn og skoraði auðveldlega. Aron Birkir kom síðan í veg fyrir að fjórða markið kæmi þegar hann varði glæsilega frá Róbert Elís af stuttu færi. Staðan 3:0 í leikhléi, Þórsarar arfaslakir og ekki búnir að eiga markskot. Þeir áttu reyndar tilkall til vítaspyrnu í hálfleiknum þegar Ingimar Arnar Kristjánsson var togaður niður við endalínu en Sigurður Hjörtur Þrastarson flautaði ekki.

Mattias Edeland togar Ingimar Arnar Kristjánsson greinilega niður í vítateignum en Sigurður Hjörtur dómari dæmdi ekkert. Myndir: Ármann Hinrik.

Þórsarar hresstust aðeins eftir hlé og reyndu hvað þeir gátu en ÍBV var þó með leikinn í hendi sér allan tímann. Það var ekki fyrr en 10 mínútum fyrir leikslok að lítill vonarneisti kviknaði þegar Ágúst Eðvald skoraði gott mark eftir góðan samleik við Bjarna Guðjón Brynjólfsson. Ágúst Eðvald fékk boltann inni í teig hægra megin og þrumaði honum í netið. Vonarneistinn litli slokknaði þó nánast strax, því Eyjamenn bættu við marki í næstu sókn. Omar Sowe átti hættulítið skot að marki frá vítateigslínu en Ásbjörn Líndal setti út fótinn og stýrði boltanum í markhornið. Ekki dagurinn hans í dag, frekar en margra annarra liðsfélaga hans. 

Eyjamenn hafa nú unnið tvo leiki í röð og eru að vakna til lífsins undir stjórn Aleksandar Linta en hann lék með Þór við góðan orðstír frá 2008-2011. Mynd: Ármann Hinrik.

Tap í næsta leik sendir Þór á botninn

Sanngjarn 4:1 sigur gestanna í höfn og þeir höfðu því sætaskipti við Þórsara í deildinni. Þórsarar eru komnir niður í 11. og næstneðsta sætið og þurfa heldur betur að hysja upp um sig buxurnar því næsti leikur er útileikur gegn neðsta liðinu, FH, sem vann sinn fyrsta leik á tímabilinu í dag og er aðeins stigi á eftir Þór. Gríðarlega mikilvægur leikur og frammistaða Þórs þarf að vera talsvert beittari heldur en gegn ÍBV í dag. Vissulega hafa stór skörð verið höggvin í leikmannahópinn upp á síðkastið en engu að síður hlýtur liðið að geta sýnt betri frammistöðu en í dag. Ógnin fram á við var engin, miðjumennirnir áttu ekki roð í miðjumenn ÍBV og vörnin var oft í vandræðum. Smári Signar Viðarsson kom inn á í sínum fyrsta leik í efstu deild og sýndi góða takta, en hann er aðeins fimmtán ára. Efniviðurinn er nægur hjá Þór en betur þarf að vinna úr honum til að árangur náist.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Allir með

Linda Guðmundsdóttir og Kristján Sturluson skrifa
13. júní 2026 | kl. 10:00

Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra

Jónas B. Guðmundsson skrifar
11. júní 2026 | kl. 06:00

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00