Fara í efni
Umræðan

Þór 111 ára – boðið til veislu í Hamri í dag

Íþróttafélagið Þór er 111 ára  í dag. Í tilefni dagsins er boðið veislu í félagsheimilinu Hamri kl. 14:00 og félagsmenn hvattir til að mæta. Veittar verða heiðursviðurkenningar, boðið upp á tónlistaratriði og léttvar veitingar verða í boði.
 

Héraðsskjalasafnið á Akureyri birti í morgun skemmtilega færslu og meðfylgjandi mynd á Facebook síðu safnsins. Pistillinn er birtur hér í heild:

Íþróttafélagið Þór er 111 ára í dag

Íþróttafélagið Þór var stofnað í Strandgötu 45 þann 6. júní 1915 og er elsta starfandi íþróttafélagið á Akureyri. Fyrsti formaður Þórs og helsti hvatamaður að stofnun þess var Friðrik Sigurður Einarsson (1900-1918).

Myndin sýnir teiknaða útgáfu af embættistákninu, sem fyrrum formenn Þórs voru heiðraðir með í 50 ára afmælisveislu Þórs sem haldin var laugardaginn 16. október 1965. En táknið var, hamarinn „Mjölnir“ skorin úr tré og áleitraður með orðunum Þór 50 ára.

Við upphaf afmælisársins 1965 hafði verið ákveðið að viðburðir til að minnast afmælisins skyldi dreift á allt árið. Fór fram álfadans og brenna, heimsókn Íslandsmeistaranna í körfuknattleik, skíðamót í Hlíðarfjalli, heimsókn utanbæjarliðs í knattspyrnu, útgáfa afmælisrits og afmælisfagnaðir fyrir eldri og yngri félaga. Í afmælishófinu fyrir þá eldri sátu 270 manns. 8 af 25 stofnendum félagsins sem þá voru á lífi mættu og voru gerðir af heiðursfélögum. Auk þessa fékk félagið nær óteljandi magn af gjöfum og heillaskeytum.

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00