Fótbolti heima og úti – hjólreiðar í Kjarnaskógi
Keppni í Bestu deildum kvenna og karla í knattspyrnu rúllar af stað að nýju og tvö af Akureyrarliðunum eiga leik um helgina. Þór/KA sækir Val heim á laugardag, en Þór tekur á móti ÍBV á sunnudag. Á sunnudag er einnig hjólreiðamót fyrir krakka í Kjarnaskógi.
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ - fótbolti
Þór/KA á enn eftir að ná sínum fyrsta sigri í Bestu deildinni þetta árið. Liðið sækir Val heim á laugardag, en bæði lið hafa átt betri daga en þá tæpa 50 daga sem liðnir eru frá því að mótið hófst. Valur er í 8. sætinu með sjö stig að loknum sjö umferðum, en Þór/KA í 10. sæti með tvö stig.
- Besta deild kvenna í knattspyrnu, 8. umferð
N1 völlurinn að Hlíðarenda kl. 16:15
Valur - Þór/KA
Valur vann báðar viðureignir liðanna í fyrra, fyrst 3-0 á sínum heimavelli í apríl og 2-1 á Akureyri í ágúst.
SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ - fótbolti, hjólreiðar
Það verða mikilvæg þrjú stig í boði þegar Þór tekur á móti ÍBV í 10. umferð Bestu deildar karla á sunnudag. Bæði lið eru nálægt botninum, ÍBV í 11. sæti með fimm stig og Þór sætinu ofar með stigi meira. Eftir sex töp í röð hafa Eyjamenn náð sér í fjögur stig í síðustu tveimur leikjum, en liðið vann sinn fyrsta sigur í mótinu í 9. umferðinni gegn Keflavík. Eftir sex stig í fyrstu þremur leikjunum hefur Þór hins vegar tapað sex leikjum í röð.
- Besta deild karla í knattspyrnu, 10. umferð
Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigras sunnan við Bogann) kl. 17
Þór - ÍBV
Eyjamenn leika undir stjórn Alexandars Linta, sem lék með Þór á árum áður.
- - -
- Krónuhjólreiðamótið
Kjarnaskógur kl. 9-13.

Af trjám, sól, skjóli og yndi
Að þora ekki að ræða við nágranna sína
Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!
Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar