Haugland farinn og hópurinn þynnist enn
Norski framherjinn Sebastian Haugland sem gekk til liðs við knattspyrnulið Þórs snemma vors er farinn frá félaginu. Samkvæmt því sem Vísir greinir frá þurfti Haugland að fara heim til Noregs af persónulegum ástæðum og í samtali við Vísi segist Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari liðsins, ekki búast við að Norðmaðurinn komi aftur.
Þórsarar hafa tapað sex leikjum í röð í efstu deild og þurfa nauðsynlega á stigum að halda í næstu leikjum. Hins vegar hafa talsverð skörð verið höggvin í leikmannahópinn upp á síðkastið, því auk Hauglands verður sænski kantmaðurinn Isaac Atanga ekki meira með liðinu í sumar vegna meiðsla sem hann hlaut gegn KA. Þá er reynsluboltinn Atli Sigursjónsson tognaður aftan í læri og verður ekki með á næstunni. Til að kóróna þetta var Christian Greko Jakobsen úrskurðaður í tveggja leikja bann eftir að hafa fengið rauða spjaldið í leik gegn Stjörnunni. Næstu tveir leikir Þórs eru gríðarlega þýðingarmiklir en þá mætir liðið ÍBV og FH, sem eru einu liðin neðan við Þór í töflunni. Fjarvera þessara fjögurra lykilmanna setur því talsvert strik í reikninginn.
„Þurfum að bregðast við þessu“
„Þetta er ekki ídealt og við þurfum að bregðast við þessu. Að missa tvo menn, sem áttu að vera aðalkallarnir. Þannig að við munum reyna að fá framherja og kantmann,“ segir Sigurður þjálfari í samtalinu við Vísi en Þórsarar þurfa samt sem áður að bíða fram í miðjan júlí með að styrkja liðið en þá verður félagaskiptaglugginn opnaður á ný. „Við erum með breiðan hóp og það hefur verið vesen að velja lið. Nú þurfa bara aðrir að stíga upp,“ segir Sigurður Heiðar.
Af trjám, sól, skjóli og yndi
Að þora ekki að ræða við nágranna sína
Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!
Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar