Fara í efni
Umræðan

Aron Einar ræðir við nýtt félag í Katar

Aron Einar í sjónvarpsviðtali eftir að hann varð bikarmeistari með Al Gharafa í byrjun maí.

Knattspyrnumaðurinn Aron Einar Gunnarsson leikur hugsanlega áfram í Katar næsta vetur. Landsliðsfyrirliðinn fyrrverandi verður þó ekki áfram í herbúðum Al Gharafa, sem hann lék með tvö síðustu keppnistímabil, heldur er Aron í viðræðum við annað félag.

Aron Einar, sem varð 37 ára í apríl, hefur verið sterklega orðaður við Þór undanfarnar vikur og ekki er útilokað að hann snúi heim og leiki með uppeldisfélaginu síðari hluta sumars í Bestu deildinni, en það veltur á niðurstöðum viðræðna við katarska liðið.

Enn er sem sagt óljóst hvað verður en óhjákvæmilegt er annað en að nefna til gamans, að félagaskiptaglugginn hérlendis verður opnaður á ný 16. júlí. Fyrsti leikur Þórs eftir það er tveimur dögum síðar – á heimavelli gegn Íslandsmeisturum Víkings.

Eftir mörg ár í ensku deildakeppninni með Coventry og Cardiff samdi Aron Einar við Al-Arabi í Katar þar sem hann lék frá 2019 til 2024. Hann lék síðan hluta sumarsins 2024 með Þór í næstu efstu deild Íslandsmótsins en gekk til liðs við Al Gharafa síðsumars og var í herbúðum liðsins tvær leiktíðir. Félagið varð bikarmeistari í Katar bæði árin og Aron kvaddi Al Gharafa með góðri frammistöðu í lokaleik nýliðins keppnistímabils, bikaúrslitaleiknum, þar sem liðið vann Al Sadd 4:1. 

Aron Einar Gunnarsson þegar hann samdi við Þór um mitt sumar 2024. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00