Fara í efni
Umræðan

„Óska Akureyringum hjartanlega til hamingju“

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri, til vinstri, og Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, eftir undirritun samningsins í dag.
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu í dag samkomulag þess efnis að 80 rýma hjúkrunarheimili rísi við Þursaholt 2 á Akureyri. Stefnt er að því að taka hjúkrunarheimilið í notkun í árslok 2028. Eftir að hafa undirritað samninginn skoðuðu ráðherra og bæjarstjóri byggingarstaðinn ásamt fulltrúum úr bæjarstjórn, öldungaráði og stjórn Félags eldri borgara á Akureyri.
 
„Ég er afar ánægð með að nýtt hjúkrunarheimili rísi á Akureyri og óska Akureyringum hjartanlega til hamingju. Gríðarleg þörf hefur verið fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila á Íslandi og nú er verkstjórn tekin við sem setur málið á dagskrá. Uppbygging hjúkrunarheimila er nú hafin fyrir alvöru,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, í tilkynningu frá Akureyrarbæ.
 
„Skiptir máli fyrir alla bæjarbúa“
 
„Það er ánægjulegt að sjá þetta mikilvæga verkefni verða að veruleika í góðu samstarfi við ríkið. Bygging nýs hjúkrunarheimilis er mikið framfaraskref fyrir Akureyri og skiptir máli fyrir alla bæjarbúa – ekki síst eldra fólk og aðstandendur þeirra. Við höfum lagt mikla áherslu á að bæta þjónustu við eldri borgara og þetta verkefni er stór þáttur í þeirri vegferð,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar.
 
Samkvæmt samningunum útvegar Akureyrarbær ríkinu lóðina og á næstunni verður auglýst eftir aðila til að byggja hjúkrunarheimilið. Ríkið mun síðan leigja húsið með leigusamningi til 20-30 ára. „Þursaholt er talin afar hentug staðsetning, þar sem innviðir eru þegar til staðar. Þá mun Akureyrarbær afhenda lóð við Þursaholt 4-12 fyrir byggingu íbúða og þjónustu fyrir eldra fólk byggt á hugmyndafræði um lífsgæðakjarna,“ segir í tilkynningunni frá bænum.
 
Miðað er við að framkvæmdir hefjist árið 2026 þannig að taka megi hjúkrunarheimilið í notkun í árslok árið 2028.
 

Opið bréf til heilbrigðisráðherra

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
08. desember 2025 | kl. 17:30

Stafrænt kynbundið og kynferðislegt ofbeldi: alvarlegt og vaxandi samfélagsmein

Tryggvi Hallgrímsson skrifar
06. desember 2025 | kl. 11:00

Opið bréf til stjórnvalda

Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og aðrir starfsmenn lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri skrifa
03. desember 2025 | kl. 10:00

Fundur á Akureyri um hættulega úrelta stjórnarskrá Íslands

Hjörtur Hjartarson og Katrín Oddsdóttir skrifa
28. nóvember 2025 | kl. 18:00

Jákvæð áhrif millilandaflugs til Akureyrar eru miklu meiri en þú heldur

Lára Halldóra Eiríksdóttir skrifar
27. nóvember 2025 | kl. 10:30

Opið bréf til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
26. nóvember 2025 | kl. 17:30