Fara í efni
Umræðan

Sex hæða hús í stað Kristjáns bakarís?

Mynd úr erindi Kollgátu til skipulagsráðs Akureyrar

Nokkuð er síðan brauð var bakað í Hrísalundi 3, þar sem Kristjánsbakarí – Brauðgerð Kr. Jónssonar – var lengi til húsa en Gæðabakstur eftir að það félag keypti hið fyrrnefnda. Nú hafa eigendur húsnæðisins áhuga á að byggja allt að sex hæða hús á lóðinni þar sem verslun og þjónusta yrði á jarðhæð en íbúðir á efri hæðum.

Skipulagsráð Akureyrar fjallaði um málið í morgun og tók jákvætt í þá ósk Kollgátu fyrir hönd Hrísalundar ehf. að aðalskipulagi svæðisins yrði breytt þannig að hugmyndir félagsins gætu orðið að veruleika.

  • Meðfylgjandi myndir eru allar úr erindi Kollgátu fyrir hönd Hrísalundar ehf. og birtust með fundargerð ráðsins á vef Akureyrarbæjar í dag.

„Ástæða er til að líta til stærra svæðis sunnan Þingvallastrætis í tengslum við aðalskipulagsbreytingu til að kveða á um blandaða byggð íbúða og snyrtilegrar atvinnu- og þjónustustarfsemi,“ segir í fundargerð skipulagsráðs. Ráðið frestaði afgreiðslu málsins og fól skipulagsfulltrúa að útbúa tillögu að lýsingu aðalskipulagsbreytingar samkvæmt framansögðu ásamt því að ræða við umsækjanda um framhald málsins.

Umrætt svæði er skilgreint sem athafnasvæði í gildandi Aðalskipulagi Akureyrar, „og má segja að svæðið séu leifar af skipulagi sem gert var á 8. áratugnum utan um þann létta iðnað sem þarna var að byggjast upp á þeim tíma. Svæðið hefur aldrei verið deiliskipulagt,“ segir í erindi Kollgátu.

Hrísalundur 3 og næsta nágrenni í dag.

Frumgreining og tillaga Kollgátu er að þróa skipulag fyrir lóðina sem gerir ráð fyrir eftirfarandi þáttum:

  • Lóðin fái skipulagsstöðu blandaðrar notkunar.
  • Nýtingarhlutfall gefi leyfi fyrir að minnsta kosti 4.500 fermetrum byggðum ofanjarðar.
  • Íbúðafjöldi verði á bilinu 25-30
  • Að minnsta kosti 20 bílastæði verði í kjallara hússins
  • Bílastæði á lóð standist kröfur um eitt stæði fyrir hverja 50 fermetra verslunarhúsnæðis.
  • Kvöð verði á verslunar/þjónustuhúsnæði á 1. hæð
  • Leyfilegt verði að byggja a.m.k. sex hæðir auk kjallara.

Í erindi Kollgátu eru talin upp eftirfarandi rök með breyttri notkun lóðarinnar:

  • Engin þörf er á Athafnasvæði á þessum stað í bænum lengur.
  • Lóðin er frábærlega staðsett í miðju Lundahverfi og stutt frá Giljahverfi, upp við stofnbraut, við íþróttasvæði K.A.
  • Vegna þess að engin íbúðarhús liggja þétt upp að lóðinni til austurs eða norðurs eru skuggavarpsáhrif minni frá mögulegum byggingum en víðast annarsstaðar.
  • Skipulagsyfirvöld bæjarins hafa horft til lóðarinnar undanfarin tvö ár sem mögulega þéttingarlóð. Því er líklegt að breytingar sem þessar nái fram að ganga. 

Sjókvíaeldi við Eyjafjörð

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
25. mars 2026 | kl. 13:15

Þegar áhuginn vex hraðar en aðstaðan

Kristján H. Kristjánsson skrifar
25. mars 2026 | kl. 13:10

Hvernig byggjum við upp vinnustaði þar sem fólk dafnar?

Hrefna Guðmundsdóttir skrifar
25. mars 2026 | kl. 13:00

ESB‑umræðan: Ótti, staðreyndir og upplýst ákvörðun

Halla María Sveinbjörnsdóttir skrifar
23. mars 2026 | kl. 06:00

Jaðarsetning eldri borgara?

Benedikt Sigurðarson skrifar
20. mars 2026 | kl. 19:00

Spörum okkur ekki til óbóta

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Sverre Jakobsson skrifa
19. mars 2026 | kl. 21:30