Fara í efni
Umræðan

Opið bréf til Gunnars Más

Þakka þér kærlega fyrir svarið, Gunnar.

Það gleður okkur að við erum sammála um margt. Þú talar um ærnar og hrútana, og veist að annað fer upp á hitt og engin önnur kyn spila fleiri hlutverk í því ferli; hvorki sauðstálp né kindkvár.

Einnig gerir þú þér grein fyrir að það sem við nefnum hlutina eru hugmyndir mannanna, og sjálfsagt að kenna börnum ólíkar hugmyndir. Á sama tíma er nauðsynlegt að kenna þeim muninn á hugmyndum og veruleika, en þar virðast málin flækjast þar sem mikið ósammæli er um ágæti þessara hugmynda og hvort þær séu í rauninni að bæta líðan barnanna eða hvort þær valdi þeim skaða.

Við fögnum því hugrekki sem þú sýnir með þinni rökhyggju. Við, foreldrar leik- og grunnskólabarna á Akureyri, skynjum þó á sama tíma að þér þykir ákall okkar til svara varla svaravert þar sem þú dansar í kringum annars skýrar og einfaldar spurningarnar.

Við spurðum hvort þú eða þinn flokkur væruð meðvituð um að með tilkomu laga um kynrænt sjálfræði væri gengið á mannréttindi kvenna og stúlkna. Þú segist ekki skilja tengslin þar á milli. Það er ótækt fyrir mann í bæjarstjórn. Helmingur íbúa sveitarfélagsins er kvenkyns og hefur með tilkomu þessara laga misst kynbundin réttindi sín.

Leyfðu okkur að upplýsa þig, þetta er mikilvægt, og þetta vefst eflaust fyrir fleirum:

Meginefni laga um kynrænt sjálfræði er að veita fólki ótakmarkað frelsi til að skilgreina kyn sitt eftir eigin kynvitund. Kynvitund er hugtak sem lýsir huglægri afstöðu einstaklinga til eigin kyns. Með lögum um kynrænt sjálfræði var kynvitund, þ.e. upplifun fólks af eigin kyni, gefið meira vægi en líffræðilegt kyn. Segist karlmaður vera kona hlýtur hann lagalega stöðu konu og á rétt á allri þjónustu og réttindum sem konur hafa, t.d. aðgengi að kvennaklefum og kvennasalernum. Það eitt og sér ætti að hringja viðvörunarbjöllum þar sem rýmin voru aðskilin af góðri ástæðu er varðar öryggi, friðhelgi og blygðunarsemi stúlkna og kvenna. Hið upprunalega fyrirkomulag var gott á meðan það varði en hefur nú verið selt fyrir upplifun karlmanna sem telja sig konur.

Vert er að nefna að ekkert sakavottorð þarf til þess að breyta kynskráningu einstaklings.

Þ.a.l. hefði dæmdur, fúlskeggjaður glæpamaður með typpi og pung löglegt aðgengi að ungum stúlkum í kvennaklefa Akureyrarlaugar og eina vörn stúlknanna er von um að þeir mæti ekki í klefana. Réttur karla á upplifun er æðri blygðunarsemi og friðhelgi ungra stúlkna.

Lög um kynrænt sjálfræði hafa komið sérstaklega illa við heilbrigðisstarfsfólk, en læknum og heilbrigðisstarfsfólki ber lagaleg skylda til að framkvæma inngrip sem veikja og skemma fullkomlega heilbrigða líkama, þvert á samvisku, sérfræðiþekkingu, og svarinn eið; læknaeiðinn. Líffræði spyr ekki um upplifun eða skoðanir, sem kynrænt sjálfræði er. Starfsfólk heilbrigðisgeirans fæst ekki til að tjá sig – atvinna þess er í húfi!

Tungumálinu hefur verið breytt til að rúma einstaklinga sem telja sig ekki falla undir líffræðilegan raunveruleika. Meðgönguvernd (áður mæðravernd), leghafar (áður konur), fæðingarforeldri (áður móðir), fólk með PCOS, fólk með endó, ófrískt fólk.

Konur, mæður, dætur: Þessi orð eru ekki svo innantóm að það sé í boði að rýra vægi þeirra fyrir betri upplifun karla.

Transkonur (karlmenn sem upplifa sig sem konur), hafa einnig fullt aðgengi að hópum og úrræðum fyrir kvenkyns þolendur ofbeldis. Kvennafangelsi, þar sem okkar viðkvæmustu konur dvelja standa nú líffræðilegum karlmönnum til boða. Glæpir transkvenna, sem skv. rannsóknum sýna sömu afbrota og ofbeldishegðun og karlmenn, færast yfir á tölfræði um glæpi kvenna.

Við gætum líka tekið umræðuna með áherslu á fjárveitingar á kostnað skattgreiðenda, en mögulega hefðu hópar sem berjast í bökkum fyrir langveik börn sín eða aldraða foreldra áhuga á því að vita að leghálslausar transkonur eiga nú rétt á niðurgreiddum leghálsskoðunum og ókeypis brjóstaaðgerðir, legnám, hormónameðferðir, kynfærauppbygging og talþjálfun stendur þessum einstaklingum til boða, svo eitthvað sé nefnt. Kostnaðurinn við að eyðileggja líkamlega heilbrigðar manneskjur með testesteróni eða estrógeni fellur einnig á kerfið.

Við spurðum hvort þú eða þinn flokkur treysti kennurum til að sinna fræðslu skv. Aðalnámskrá, um kynvitund, trans og fleira sem viðkemur hugmyndafræðinni? Einnig spurðum við hvort værir sammála embætti landlæknis um hvort intersex væri fæðingargalli þar sem námsefni grunnskólanna fjallar um intersex sem ákveðið kyn.

Við erum sammála um að það sé hægt að treysta kennurum til þess að fræða börnin, en okkur þykir ekki skrýtið að þegar fullorðnir menn í bæjarstjórn þykjast ekki sjá muninn á milli fæðingargalla og hugtaka, að kennarar: menntað fólk með gagnrýna hugsun sem veit að námsefni á fyrst og fremst að byggja á vísindalega gagnreyndum grunni, sé farið að ruglast á raunveruleika og hugmyndafræði.
Lofaðu okkur að styðja við þig þar sem þú hrasar í gegnum grýtt landslag rétttrúnaðar: Námsefni barna á að vera rétt og satt.

Í námsefni grunnskóla er talað um að börnum sé úthlutað kyn við fæðingu og að foreldrar geti sér til um kyn eigið barns. Þú svarar með neglu um hrúta og ær og talar um mikilvægi þess að börnum líði vel í eigin skinni. Mikilvægi þess er okkur sameiginlegt grundvallarmál. Það er frábært ef börnum líður betur í dag en í gær en okkur er þó einnig umhugað um morgundaginn. Þar sem þú ert í leiðtogastarfi fyrir bæinn, Gunnar, þá mælum við með að þú lítir örlítið fram á við, framhjá dyggðarflöggum og atkvæðum, og beint framan í þann raunveruleika sem verður ef við ljúgum að börnum og gefum í skyn að líkamar þeirra séu mögulega einhvers konar gallað púsluspil, ótengdir kyni þeirra, sem hægt sé að leiðrétta með því að skipta út bitum. Líkamleg og andleg heilsa barna okkar er ekki til sölu fyrir atkvæði í sveitarstjórnarkosningum.

Þér finnst spurning okkar um hvort hægt sé að breyta um líffræðilegt kyn óáhugaverð og berð fyrir þig að það snerti þig meira að lesa mýtur um háa sjálfsmorðstíðni samkynhneigðra og þeirra sem finnst þau lifa í röngu kyni. Þú bendir á að vanlíðan og skömm sé mikið samfélagsmein. Við minnum á að það er á okkar ábyrgð, fullorðna fólksins, að leysa slík vandamál. Vanlíðan og skömm, rétt eins og sjálfsmyndaróreiða eða kynami, eru huglæg vandamál sem þurfa viðeigandi meðhöndlun – ekki fána, fögnuð og heimtingu á meðvirkni samfélagsins. Skurðaðgerðir og hormónagjafir eru ekki viðeigandi lausnir fyrir börn sem upplifa sjálfsmyndaróreiðu. Meðhöndlun byggð á meðvirkni mun aldrei leiða til bata.

Við erum meðvituð um áhugaleysi þitt á kynleiðréttingahugmyndum sem bornar eru í börnin okkar í nafni fræðslu um fjölbreytileika, en okkur þykir nauðsynlegt að leiðrétta þann misskilning sem þú ert haldinn og vitnum í langtímarannsóknir sem ættu að snerta þig á sama hátt, þrátt fyrir að vera gagnreyndar. Ef þú skoðar t.a.m Cass skýrsluna þá sérðu að þegar leiðrétt er fyrir öðrum sálrænum vanda er ekki tölfræðilega marktækur munur á sjálfsvígstíðni ungmenna sem upplifa kynósamræmi og annarra ungmenna. Fólk sem fer í kynleiðréttingu er skv sænskri rannsókn aftur á móti 19 sinnum líklegra til að fremja sjálfsmorð.

Áhættan sem felst í því að halda sjálfsmorðsmýtunum lifandi er mikil. Öll umfjöllun um sjálfsvíg þar sem hún er tengd einni orsök, getur hreinlega ýtt undir fleiri sjálfsvíg, en ítrekað hafa aðilar á vegum Samtakana ‘78 stigið fram og fullyrt að líf barna með einhverskonar sjálfsmyndaróreiðu sé í húfi fái þau ekki kynstaðfestandi meðferð.

Við endum þetta á æðruleysisbæninni góðu, Gunnar, og óskum Akureyringum gleðilegra kosninga og velfarnaðar.

Guð – gef mér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt
og visku til að greina þar á milli.

Með kærri kveðju, f.h. Drenglyndis 

Ína Steinke og Víðir Orri Hauksson eru í félaginu Drenglyndi.

Svifrykið - hin falda vá

Júlía Júlíusdóttir skrifar
15. maí 2026 | kl. 11:10

Af svifryki, strætó og sjálfstæðum krökkum

Kristín Helga Schiöth skrifar
15. maí 2026 | kl. 11:00

Málefni fatlaðra á Akureyri – fundurinn með Þroskahjálp

Hólmgeir Karlsson skrifar
14. maí 2026 | kl. 20:00

Betur má ef duga skal

Arna Garðarsdóttir skrifar
14. maí 2026 | kl. 11:30

Hof, menningarhúsið okkar

Ólafur Kjartansson skrifar
14. maí 2026 | kl. 09:45

Varðveitum náttúruperlur Akureyrar

Elvar Fossdal skrifar
14. maí 2026 | kl. 09:35