Fara í efni
Umræðan

Öll starfsemi SAk flutt frá Kristnesi

Mygla fannst fyrr árinu á Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit og nú hefur verið ákveðið að færa alla starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) af staðnum og til Akureyrar um óákveðinn tíma. SAk hefur verið með endurhæfingaþjónustu í Kristnesi. Eftir ítarlega skoðun og greiningu á húsnæðinu þykir ljóst að það sé óhæft fyrir heilbrigðisþjónustu og verður starfsemin flutt seinna í sumar.

Unnið er að því að koma dag- og göngudeildarhluta þjónustunnar fyrir í nýju 815 fermetra leiguhúsnæði á Akureyri og stefnt að því að starfsemi þar hefjist í september. Þar á að vera hægt að veita allt að 20 skjólstæðingum þjónustu á dagdeild og göngudeild en sex legurými fyrir endurhæfingarsjúklinga verða tekin í notkun á skurðlækningadeild SAk í byrjun ágúst.

  • Húsnæðið í Kristnesi er í eigu ríkisins og hvort sem starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri verður flutt í Kristnes aftur eður ei er hér um mikil tímamót að ræða; á næsta ári verða 100 ár síðan berklahælið þar var tekið í notkun og allar götur síðan hefur verið heilsutengd starfsemi á Kristnesspítala.
  • Nánar hér um sögu Kristnesspítala hér: Heilsutengd starfsemi í Kristnesi í 99 ár

„Okkur er mikið í mun að standa vörð um endurhæfingarþjónustu sem og aðra þjónustu SAk, þrátt fyrir þessar krefjandi aðstæður í húsnæðismálum, enda er þjónustan sjúklingum og aðstandendum þeirra afar mikilvæg,“ segir Guðjón Hauksson forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri. „Fram undan er umfangsmikið verkefni sem kallar á samvinnu, lausnamiðaða hugsun og sveigjanleika. Innan SAk er til staðar bæði mikil sérfræðiþekking og mikill vilji til að tryggja góða þjónustu. Ég er sannfærður um að með sameiginlegu átaki munum við takast á við þessar áskoranir, samhliða því að leggja grunn að öflugri endurhæfingarþjónustu til framtíðar,“ segir Guðjón.

Forstjórinn segir að breytingarnar muni óhjákvæmilega hafa áhrif á skipulag endurhæfingarþjónustu en einnig á aðra starfsemi sjúkrahússins. Til að skapa rými innan veggja stofnunarinnar fyrir sjúklinga og klínískt starfsfólk sé m.a. verið að skoða tímabundnar húsnæðislausnir á lóð SAk fyrir hluta þess starfsfólks sem ekki starfar beint með sjúklingum.

Kristnesspítali í Eyjafjarðarsveit.

Ísland og ESB: Horft af brúnni

Þorvaldur Gylfason skrifar
04. ágúst 2026 | kl. 12:30

Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál?

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
29. júlí 2026 | kl. 11:30

Landbúnaður, fæðuöryggi, byggðamál og ESB

Hólmgeir Karlsson skrifar
27. júlí 2026 | kl. 06:00

Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu

Hjörtur Hjartarson skrifar
23. júlí 2026 | kl. 13:36

Svæðisborgin Akureyri

Sigurjón Þórðarson skrifar
13. júlí 2026 | kl. 06:00

Evrópusambandið, meira en tollabandalag

Steinar Harðarson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 18:00