Oftast strikað yfir nafn Berglindar Óskar
Oftast var strikað yfir nafn Berglindar Óskar Guðmundsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, á kjörseðlinum í bæjarstjórnarkosningunum á laugardaginn – 41 sinni. Næst oftast var strikað yfir nafn Heimis Arnar Árnasonar, sem var í öðru sæti hjá Sjálfstæðisflokknum, 34 sinnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá kjörstjórn á Akureyri.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokks voru oftast strikaðir út, alls 105 sinnum, en svo fáar útstrikanir hafa engin áhrif á niðurstöður. Sjálfstæðisflokkur fékk flest atkvæði á Akureyri, alls 1.992.
Útstrikanir í kosningunum voru alls 269. Auðir seðlar voru 275 og 25 ógildir.
Hér má sjá þá frambjóðendur sem oftast var strikað yfir. Í sviganum kemur fram hvaða sæti viðkomandi skipaði á framboðslistanum.
- (1) Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Sjálfstæðisflokki – 41
- (2) Heimir Örn Árnason, Sjálfstæðisflokki – 34
- (1) Hlynur Jóhannsson, Miðflokki – 20
- (1) Þórhallur Jónsson, Akureyrarlista – 14
- (3) Arna Rut Gunnarsdóttir, Sjálfstæðisflokki – 12
- (1) Sunna Hlín Jóhannesdóttir, Framsókn – 10
- (3) Preben Jón Péturson, L-Lista – 10
- (2) Elías Gunnar Þorbjörnsson, Viðreisn – 9
- (2) Stefán Oddur Hrafnsson, VG – 9
- (1) Óðinn Svan Óðinsson, L-Lista – 9
- (1) Sindri Kristjánsson, Samfylkingu – 8
- (4) Þórhallur Harðarson, Sjálfstæðisflokki – 7
- (1) Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, Viðreisn – 4
- (5) Andri Teitsson, L-Lista – 4
- (21) Njáll Treusti Friðbertsson, Sjálfstæðisflokki – 4
- (3) Ásrún Ýr Gestsdóttir, VG – 4
Útstrikanir voru alls 269 í kosningunum á laugardaginn og skiptust eftir framboðum sem hér segir:
- Sjálfstæðisflokkur 105
- Viðreisn 36
- L-listi 31
- Miðflokkur 25
- Vinstri hreyfingin - grænt framboð 21
- Akureyrarlisti 19
- Samfylking 19
- Framsókn 13
Akureyri tengd til framtíðar
Til hamingju með daginn!
Tökum næstu skref
Kveðja frá oddvita Viðreisnar